Körfubolti

Enn einn stórleikurinn hjá Hlyni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hlynur í leik með Sundsvall.
Hlynur í leik með Sundsvall. vísir/valli
Hlynur Bæringsson stígur ekki inn á körfuboltavöllinn þessa dagana án þess að vera með tvöfalda tvennu.

Hann var með enn eina í kvöld er hann skoraði 15 stig, tók 11 fráköst og gaf 8 stoðsendingar í stórsigri Sundsvall Dragons á Malbas. Lokatölur þar 92-62.

Sundsvall er eftir leikinn í 2.-4. sæti ásamt Boras og Norrköping með 12 stig. Södertalje er á toppnum með 18 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×