Prógrammið sem Eivør talar um er dramatískt tónverk eftir hana sjálfa, Peter Jensen tónskáld og Marjun S. Kjelnæs rithöfund, það mun koma út á plötu innan skamms. Efnið er sótt í þjóðsöguna um konuna í selshamnum sem átti sjö börn á landi og sjö í sjó, sagan er vel þekkt bæði í Færeyjum og á Íslandi. Þar leika ástin og frelsisþráin lykilhlutverk.

„Verkið er ferðalag um hafsins djúp og líka land. Stórsveitin sér um raddir hafsins og kórinn er loft og land. Konan er föst í báðum þessum heimum, það gaf okkur innblástur.“
Þegar forvitnast er um klæðnað Eivarar á tónleikunum kveðst hún hafa leitað til saumakonu í Kaupmannahöfn, þar sem hún býr. „Ég lét sauma á mig kjól sem mér finnst passa við málverkin sem voru máluð sérstaklega fyrir þetta verkefni. Þau eru eftir færeysku listakonuna Kristinu Joensen sem oft hefur málað kópakonuna gegnum tíðina.“
Eivør segist alltaf vera rosa spennt fyrir að koma til Íslands. „Þetta verður stutt stopp núna en svo kem ég í lok febrúar og verð með mína eigin tónleika í Gamla bíói. Þá get ég stoppað aðeins lengur.“