Hvítt - Töfraheimur litanna
Catherine Wheels Production, Góðir gestir og Gaflaraleikhúsið
Hafnarborg
Höfundar: Andy Manley og Ian Cameron
Leikstjórn: Gunnar Helgason
Leikarar: Virginia Gillard og María Pálsdóttir
Leikmynd / Búningar / Hljóð: Catherine Wheels leikhópurinn
Í iðrum Hafnarborgar í Hafnarfirði má finna skjannahvíta töfraveröld þar sem umhverfi, verur og hlutir eru öll í sama föla litnum. Bómull og Krumpa búa í vel skipulögðum og tandurhreinum heimi, en störf þeirra snúast einmitt um að halda honum hreinum. Þær þrífa, þurrka af, laga og gæta þess að engir litir læðist inn. Ef svo fer þá fara þeir beint í ruslið. Þess á milli stunda þær björgunarstörf en reglulega falla egg af himnum ofan sem þær grípa af mikilli lagni og veita húsaskjól. En einn daginn kemur óvæntur gestur í heimsókn …
Það er sorgleg staðreynd að skammarlega fáar barnasýningar hafa verið frumsýndar á þessu leikári, einkum fyrir yngstu kynslóðina. En Hvítt er einmitt sérstaklega skapað fyrir okkar allra yngstu leikhúsgesti og því ber hressilega að fagna. Ef marka má kæti og einbeitingu gestanna smáu á frumsýningunni þá var yfir miklu að gleðjast, einnig hjá þeim stærri.

Öll umgjörð sýningarinnar er í höndum leikhópsins en leikmyndin, búningarnir, tónlist og hljóð eru glimrandi góð. Leikhúslausnirnar eru einfaldar en frumlegar og tónlistin er að sama skapi angurblíð án þess að vera of væmin. Gunnar Helgason annast leikstjórnina og heldur þétt utan um sýninguna; sviðshreyfingar eru skýrar, uppbrotin skondin og alltaf stutt í ljúfan húmorinn. Einnig eiga þær Virginia Gillard og María Pálsdóttir hrós skilið fyrir að halda yngstu áhorfendunum við efnið. Samvinna þeirra er falleg og vel unnin. Þær skapa einnig mikið af hljóðmyndinni sjálfar og vakti það mikla kátínu. Þá á Virginia einstaklega gott augnablik þegar Bómull, full eftirsjár, laumast ein í björgunarleiðangur.
Hvítt er kjörin sýning til að kynna ungum áhorfendum þá töfra sem leikhúsið getur kallað fram á góðum degi. Þó að sýningin sé í styttra lagi þá hittir hún beint í mark, bæði með boðskap sínum og framsetningu.
Niðurstaða: Tilvalin og litrík skemmtun fyrir yngstu leikhúskynslóðina.