Jakob Örn frábær í sigri Borås í framlengdum leik Tómas Þór Þórðarson skrifar 16. febrúar 2016 19:59 Jakob Örn var frábær í liði Borås í kvöld. mynd/borås basket
Jakob Örn Sigurðarson, landsliðsmaður í körfubolta, og félagar hans í Borås Basket unnu útisigur á Jämtland, 101-93, í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Fyrirfram var búist við þægilegum sigri Borås sem var fimm sætum og fjórtán stigum fyrir ofan Jämtland fyrir leikinn. Heimamenn byrjuðu vel og unnu fyrsta leikhluta, 23-16, en Borås svaraði með 30-19 í öðrum leikhluta og var Jämtland yfir, 42-36, þegar liðin gengu til búningsklefa. Aðeins tveimur stigum munaði á liðunum fyrir þriðja leikhlutann, 63-61, en í honum náðu heimamenn mest átta stiga forskoti, 75-67. Mikil spenna var á lokamínútunum, en staðan var 83-81 fyrir heimamenn þegar 30 sekúndur voru eftir og þurfti Borås því körfu í lokasókn sinni til að komast í framlengingu eða vinna leikinn. Borås leitaði til íslenska landsliðsmannsins Jakobs Sigurðarsonar sem jafnaði metin í 83-83 þegar átta sekúndur voru eftir. Jämtland náði ekki að tryggja sér sigurinn með lokaskotinu og því þurfti að grípa til framlengingar. Gestirnir voru sterkari aðilinn í framlengingunni þar sem Borås jók muninn jafnt og þétt og vann á endanum átta stiga sigur, 101-93. Jakob Örn átti stórleik fyrir Borås og skoraði 22 stig, tók sjö fráköst og gaf tvær stoðsendingar. Hann hitti úr sjö af níu skotum sínum úr teignum og tveimur af fimm þriggja stiga skotum. Borås er eftir leikinn áfram í fjórða sæti sænsku úrvalsdeildarinnar með 30 stig eftir 24 leiki, fjórum stigum á eftir Luleå og fjórum stigum á undan Sundsvall.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira