Stjórn Golfsambands Íslands hefur ráðið Brynjar Eldon Geirsson í starf framkvæmdastjóra sambandsins. Starfið var auglýst laust fyrir áramót en tæplega 50 umsækjendur sóttust eftir starfinu.
Brynjar er 38 ára gamall og hefur starfað innan golfhreyfingarinnar frá árinu 2000, bæði á Íslandi og í Þýskalandi. Brynjar tók við starfi íþróttastjóra hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar eftir að hafa lokið PGA golfkennaranámi í Þýskalandi.
Árið 2007 var hann ráðinn íþróttastjóri hjá Golfklúbbi Reykjavíkur og hann var um tíma aðstoðarlandsliðsþjálfari hjá GSÍ. Undanfarin tvö ár hefur hann starfað sem íþróttastjóri Märkischer Golfclub Potsdam í Berlín.
„Ég hlakka mikið til að takast á við þau fjölmörgu krefjandi verkefni sem fylgja starfinu og er þakklátur fyrir að fá þetta tækifæri. Ég mun vinna að markmiðum Golfsambands Íslands með hag og framfarir hreyfingarinnar að leiðarljósi í nánu samstarfi við golfklúbba landsins," sagði Brynjar Eldon Geirsson í samtalið við heimasíðu Golfsambandsins en hann mun hefja störf í byrjun mars.
„Það er virkilega ánægjulegt að hafa fengið Brynjar til liðs við golfsambandið. Hann býr yfir mikilli þekkingu á golfíþróttinni og verður öflugur liðsmaður. Golfíþróttin hefur vaxið gríðarlega á undanförnum árum og það verður spennandi að vinna með Brynjari að áframhaldandi sókn íþróttarinnar,“ sagði Haukur Örn Birgisson, forseti GSÍ um ráðninguna í fréttatilkynningu frá GSÍ.
Brynjar Eldon Geirsson sá hæfasti af fimmtíu manns sem vildu starfið
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar

Mest lesið


Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool
Enski boltinn



Sætur sigur HK og Vilhelm bjargaði stigi fyrir ÍR
Íslenski boltinn

Eitt töfrabragð dugði gegn United í dýrmætum sigri
Enski boltinn

„Ég get ekki beðið“
Handbolti

„Þurfa allar og við þjálfararnir að líta í eigin barm“
Íslenski boltinn


Selirnir verða heiðursgestir á fyrsta heimaleik KR
Íslenski boltinn