Barcelona hefur aðeins fengið eitt stig í síðustu þremur umferðum í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu en liðið tapaði, 1-0, fyrir Real Sociedad á Anoeta-vellinum í San Sebastían á Spáni.
Eina mark leiksins gerði Mikel Oyarzabal, 18 ára sóknarmaður, heimamanna og kom markið á fimmtu mínútu leiksins.
Leikmenn Real Sociedad sýndu stórbrotinn varnarleik í kvöld og fengu leikmenn Barcelona ekki mörg færi.
Úrslit leiksins setja toppbaráttuna í mikið uppnám en núna munar aðeins þremur stigum á Barcelona og Atletico Madrid sem er í öðru sæti deildarinnar. Real Madrid er síðan fjórum stigum á eftir Barcelona. Það er því greinilega mikið fjör framundan í spænsku úrvalsdeildinni.
Real Sociedad lagði Barcelona að velli
Stefán Árni Pálsson skrifar

Mest lesið


„Komum Gylfa Þór meira í boltann“
Fótbolti



Mac Allister: Liverpool er bara rétt að byrja
Enski boltinn



„Þetta er eins og eldgamla tómatsósan“
Íslenski boltinn

