Klopp sagði leikmönnunum að búa til góða sögu fyrir barnabörnin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. apríl 2016 10:30 Divock Origi og Jürgen Klopp fagna á Anfield í gær. Vísir/Getty
Belginn Divock Origi skoraði fyrsta mark Liverpool af þeim fjórum sem liðið gerði í seinni hálfleik í endurkomusigri sínum á móti Borussia Dortmund í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar á Anfield í gærkvöldi. Liverpool lenti 2-0 undir eftir níu mínútur og var ennfremur 3-1 undir í upphafi seinni hálfleiksins. Þrjú mörk á lokakafla leiksins þar af sigurmark í uppbótartíma tryggði Liverpool sæti í undanúrslitum. Divock Origi sagði frá því eftir leikinn að mögnuð hálfleiksræða knattspyrnustjórans Jürgen Klopp hafi kveikt í Liverpool-liðinu. Klopp var þarna að stýra sínu liði á móti liðinu sem hann gerði að einu besta liði Evrópu á sínum tíma. „Þjálfarinn sagði okkur að búa til sögu sem við gætum sagt barnabörunum okkar frá og búa til sérstakt kvöld fyrir stuðningsmennina," sagði Divock Origi við Daily Mail. „Við höfðum trúna. Þegar við skoruðum fyrsta markið þá leið okkur eins og að eitthvað sérstakt væri að gerast. Í lokin voru allir, varnarmenn og framherjar, að berjast um boltann og ég tel að við höfum átt þennan sigur skilinn," sagði Origi. Divock Origi skoraði í báðum leikjunum á móti Borussia Dortmund en hann hefur nú skorað fjögur mörk í þremur síðustu leikjum Liverpool-liðsins í öllum keppnum.
Enski boltinn Evrópudeild UEFA Mest lesið Kjartan Atli lætur af störfum Körfubolti Indverjar brjáluðust út í Messi og brutust inn á völlinn Fótbolti „Ég held að þetta hafi ekki verið kveðjustund“ Enski boltinn Salah lagði upp í endurkomunni en Ekitike sá um mörkin Enski boltinn Sakna Orra enn sárt og vandræðin aukast Fótbolti Mesta heillaskref ferilsins að hafa verið rekinn Enski boltinn Ian Rush lagður inn á sjúkrahús Enski boltinn Körfuboltakvöld í áfalli yfir vörn Álftaness: „Bara kjánalegt að horfa á þetta“ Körfubolti Dýrmætur tími með börnunum áður en alvaran tekur við Fótbolti Spara margar milljónir vegna ráðningar Rúnars Handbolti Fleiri fréttir Evrópumeistararnir í vandræðum með botnliðið Raphinha reddaði málunum fyrir Börsunga Brynjólfur með langþráð mark Í beinni: Arsenal - Wolves | Toppliðið tekur á móti botnliðinu Fulham vann í markaleik á Turf Moor Ian Rush lagður inn á sjúkrahús Viktor Bjarki skoraði enn eitt markið Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik „Kannski áttum við heppnina skilið í dag“ „Ég held að þetta hafi ekki verið kveðjustund“ „Þegar þú spilar fyrir Liverpool verðurðu bara að vinna leiki“ Salah lagði upp í endurkomunni en Ekitike sá um mörkin Cecilía fagnaði stórsigri gegn erkifjendunum Vigdís Lilja lét toppsætið af hendi Palmer skoraði í fyrsta sinn síðan í september Katla í markaskónum og Ingibjörg hélt hreinu Stöngin inn hjá Ásdísi skilaði sigri Mesta heillaskref ferilsins að hafa verið rekinn Indverjar brjáluðust út í Messi og brutust inn á völlinn Dýrmætur tími með börnunum áður en alvaran tekur við Sakna Orra enn sárt og vandræðin aukast Varalesturinn flæktist fyrir þýska tvíeykinu „Held að ég gæti ekki hætt í fótbolta“ Salah snýr aftur eftir sáttafundinn Þjálfari meistaranna á hálum ís Axel verður áfram hjá Aftureldingu 38 ára Jamie Vardy að skrifa söguna fyrir enska leikmenn á Ítalíu Launað ríkulega fyrir að koma Norðmönnum á HM Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH Sólin komin upp á ný hjá Selmu Sól eftir krefjandi ár Sjá meira