Óþekktur íslenskur framherji skoraði tvö í norska bikarnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. apríl 2016 18:31 Aron Elís Þrándarson tókst ekki að skora en hans lið fór áfram. Vísir/Getty
Íslendingaliðið Aalesund komst í hann krappan í Íslendingaslag á móti nágrannaliðinu Herd í norsku bikarkeppninni í kvöld en Herd spilar þremur deildum neðar. D-deildarliðið Herd komst í 2-0 og 3-1 í leiknum en Aalesund náði að jafna metin með tveimur mörkum á síðustu þremur mínútum leiksins. Mustafa Abdellaoue skoraði jöfnunarmarkið fyrir Aalesund á 88. mínútu og fylgdi því síðan eftir með því að skora sigurmarkið í framlengingunni. Ingólfur Örn Kristjánsson kom Herd í 2-0 á móti Aalesund með tveimur mörkum á fyrstu tólf mínútum leiksins en þessi draumabyrjun dugði ekki Herd-liðinu. Ingólfur Örn er 26 ára gamall og er frá Grundarfirði. Hann spilaði með Völsungi á Húsavík áður en hann fót úr til Noregs. Það er spurning hvort frammistaða hans í kvöld veki athygli stærri liða í Noregi en hann hefur skorað níu mörk í átta leikjum með Herd í öllum keppnum á þessu tímabili. Aron Elís Þrándarson, Daníel Leó Grétarsson og Adam Örn Arnarson léku allan leikinn með liði Aalesund. Daníel Leó og Adam Örn í vörninni en Aron Elís í framlínunni.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Íslenskt stuðningsfólk varar við svindli í höllinni Handbolti Stærsta blað Slóveníu: Sársaukafull kennslustund Handbolti Ósáttur afi Sölva skildi ekki hvernig Arnar gat rekið hann í beinni Íslenski boltinn Einkunnir Strákanna okkar á móti Slóveníu: Viktor! Gísli! Hallgrímsson! Handbolti Solskjær: Lét mig vinna launalaust Fótbolti HM í dag: Forseti IHF sagður hafa beðið Þorgerði Katrínu um að afhenda verðlaunin Handbolti Óvænt rekinn með símtali rétt áður en Elísabet tók við Fótbolti Ísland byrjar á Egyptum og spilar tvo kvöldleiki Handbolti Samfélagsmiðlar yfir sigrinum á Slóveníu: „Viktor Gísli bestur í heimi eða?“ Handbolti „Hann á eftir að verða betri, áttiði ykkur á því“ Handbolti Fleiri fréttir Meistarar City halda áfram að bæta við sig „Of snemmt að kalla Liverpool besta lið í heimi“ Spilar ekki á meðan glugginn er opinn Petit baðst afsökunar á að „drepa“ Pat Rice „Ég myndi deyja fyrir Liverpool“ Ósáttur afi Sölva skildi ekki hvernig Arnar gat rekið hann í beinni Óvænt rekinn með símtali rétt áður en Elísabet tók við Forseta FIFA boðið á innsetningu Donald Trump Solskjær: Lét mig vinna launalaust Þróttur fær aðra úr Árbænum Englandsmeistararnir festa kaup á Khusanov Varnarmennirnir björguðu Chelsea Mbappé með slæmar fréttir fyrir mótherja Real Madrid Arnar fer með Ísland til Skotlands Sölvi tekinn við Víkingum með Viktor og Aron til aðstoðar Seldu treyjur Orra á uppboði fyrir fjölskyldu Maciej Elísabet tekin við Belgum Svona hjálpaði Sara fótboltakonum að geta valið bæði fjölskyldu og fótbolta Fowler með sína kenningu um þá samningslausu hjá Liverpool Rotta hljóp um á grasinu á Old Trafford í miðjum leik Neymar á heimleið? „Við erum mögulega lélegasta lið í sögu Manchester United“ Real Madrid á toppinn eftir þægilegan sigur Bjarki Steinn í fyrsta sinn í byrjunarliði Venezia Áttundi sigur Forest í síðustu níu leikjum Yfirlýsing frá City með stórsigri Onana með skelfileg mistök þegar United tapaði enn og aftur fyrir Brighton Cecilía hélt enn einu sinni hreinu og Inter vann Draumaendurkoma hjá Moyes á Goodison Park Misstu niður forystu þrátt fyrir að vera manni fleiri Sjá meira