Missir ekki bara af bikarúrslitaleiknum heldur líka af EM í Frakklandi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. maí 2016 11:00 Joe Ledley fagnar sæti á EM með Gareth Bale og markverðinum Wayne Hennesey. Vísir/Getty
Velski miðjumaðurinn Joe Ledley hjá Crystal Palace er fótbrotinn og spilar því ekki fótbolta á næstunni. Crystal Palace staðfesti alvarleika meiðsla hans í dag. Joe Ledley varð fyrir meiðslunum í leik á móti Stoke City í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi eftir tæklingu frá Charlie Adam í liði Stoke. Heimasíða Crystal Palace segir frá. Joe Ledley hafði komið inná sem varamaður í hálfleik en varð að fara af velli vegna meiðslanna aðeins ellefu mínútum síðar. Það eru aðeins tveir dagar síðan að Chris Coleman, þjálfari velska landsliðsins, valdi Joe Ledley í 29 manna æfingahóp sinn fyrir Evrópumótið. Það bjuggust flestir við því að Joe Ledley og Joe Allen myndu vera saman á miðju velska landsliðsins á EM í sumar en nú er ljóst að því verður ekki. Framundan voru líka tveir viðburðarríkustu mánuðir Joe Ledley á ferlinum því áður en að EM byrjar mun lið hans, Crystal Palace, mæta Manchester United í úrslitaleik enska bikarsins á Wembley. Joe Ledley er 29 ára gamall og hefur spilað með Crystal Palace frá 2014. EM í fótbolta átti að vera fyrsta stórmót hans með velska landsliðinu en hann hefur spilað 62 landsleiki frá árinu 2005. Hann hefur reyndar spilað bikarúrslitaleik áður en vorið 2013 vann hann skoska bikarinn með Celtic og skoraði meira að segja eitt markið í 3-0 sigri á Hibernian. Joe Ledley missir því bæði af bikarúrslitaleik á Wembley og Evrópumótinu í Frakklandi vegna þessara meiðsla og hann sendir því Charlie Adam örugglega ekki jólakort í desember.Joe Ledley eftir tæklinguna um helgina.Vísir/Getty
EM 2016 í Frakklandi Enski boltinn Mest lesið „Ég veit ekkert hverjir þetta voru“ Íslenski boltinn Þvælu að starf Ole Gunnar sé í hættu Fótbolti Hato mættur á Brúnna Enski boltinn Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Enski boltinn Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Enski boltinn „Alltaf gaman að skora fyrir uppeldisfélagið“ Íslenski boltinn Partey á leið til Villareal þrátt fyrir nauðgunar ákærur Fótbolti „Dómur af himnum ofan“ Íslenski boltinn Sigurður grautfúll: „Líður eins og við höfum tapað þessum leik“ Íslenski boltinn Þurfa þrjú stig „ef við ætlum ekki að lenda í veseni“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hato mættur á Brúnna Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Maddison meiddist aftur og „þetta lítur ekki vel út“ Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son United tilbúið að tapa miklu á Højlund Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Þessir þurfa að heilla Amorim Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Ramsdale mættur til Newcastle Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Newcastle býður í Sesko Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun „Erfið og flókin staða“ „Úrvalsdeildarliðum verður ekki fækkað niður í 18“ Er Donnarumma svarið frekar en nýr framherji? Reynsluboltinn Coady til liðs við Hollywood-lið Wrexham Liverpool tilbúið að hætta eltingaleiknum við Isak Newcastle hafnar tilboði Liverpool Sagðir vilja borga helminginn fyrir Isak í ár og hinn helminginn ári síðar Netverslun Liverpool hrundi vegna álags Er Liverpool að styrkja rangan enda vallarins? Paquetá hreinsaður af ásökunum um veðmálasvindl Nýju leikmenn Liverpool komnir með númer Liðin sem verða að gera betur á markaðnum Sænska landsliðskonan Zigiotti til liðs við Rauðu djöflana Sjáðu mörkin fjögur hjá United í nótt Arsenal skoraði ekki og tapaði í fyrsta leik Gyokeres Fjórtán er vinsælasta númer sumarsins Eigendur Liverpool eyða meira í Isak en í að kaupa fótboltafélag í Madrid Sjá meira