Kjólar Díönu prinsessu settir á uppboð Ritstjórn skrifar 30. maí 2016 10:45 Diana þótti ein af best klæddu konum síðustu aldar. Myndir /Getty
Í næsta mánuði munu tveir kjólar úr ótrúlegu fatasafni Díönu prinsessu fara á uppboð. Annar þeirra sem er blágrænn pallíettu kjóll hannaður af Catherine Walker sem hún klæddis í opinberri heimsókn til Austurríkis árið 1986. Hann var fyrst seldur á uppboði á 16.3 milljónir króna en það var þremur mánuðum áður en Díana lést í bílslysi í Frakklandi. Talið er að kjóllinn muni seljast á rúmar 18 milljónir króna þegar hann verður settur á uppboð. Hinn kjóllinn sem verður í boði er sægrænn og köflóttur. Hann var hannaður af Emanual couture, en það er sami hönnuður og hannaði brúðkaupskjólinn hennar þegar hún giftist Karli bretaprins. Díana notaði þann kjól í Feneyjum árið 1985 og er búist við að hann muni seljast á tæpar þrjár milljónir króna. Pallíettukjóllinn hannaður af Catherine Walker. Talið er að hann muni seljast á 18 milljónir.Díana klæddist þessum köflótta kjól í Feneyjum en talið er að hann muni seljast á tæpar 3 milljónir.
Mest lesið „Fiðrildið gengur viljandi á ljósastaur til að sanna fyrir ókunnugum að það er sveimhugi“ Glamour Kade Hudson í Galvan á People´s Choice Awards Glamour Kim og Kanye hanna barnaföt Glamour Er Mondler í alvöru par? Glamour Cartier fæst aftur á Íslandi Glamour Háar klaufar og pallíettur fengu að njóta sín Glamour "Það stóð nú aldrei til að hafa þjóðina á brjósti“ Glamour Tískuheimurinn titrar vegna ásakana á hendur stjörnuljósmyndara Glamour Idris Elba og Jourdan Dunn sögð vera að stinga saman nefjum Glamour Stefna á að H&M verði umhverfisvænt að fullu árið 2030 Glamour