Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, gerir miklar breytingar á byrjunarliði sínu fyrir leikinn á móti Makedóníu í undankeppni EM í kvöld.
Íslenska liðið getur nánast tryggt sér sæti á EM með sigri í leiknum en liðið er að fara að mæta neðsta liðinu í riðlinum og liði sem hefur enn ekki fengið stig í undankeppninni.
Þær sem detta út úr liðinu frá því í 4-0 sigrinum á Skotum eru markvörðurinn Guðbjörg Gunnarsdóttir, fyrirliðinn Margrét Lára Viðarsdóttir, Hólmfríður Magnúsdóttir, Anna Björk Kristjánsdóttir og Dagný Brynjarsdóttir.
Sandra Sigurðardóttir byrjar í markinu í stað Guðbjargar, Sif Atladóttir kemur inn í miðvörðinn í stað Önnu, Málfríður Erna Sigurðardóttir og Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir kom inn á miðjuna í stað þeirra Dagnýjar og Margrétar Láru og þá er Elín Metta Jensen á hægri kanti í stað Hólmfríðar.
Þær sem halda sæti sínu í liðinu eru Elísa Viðarsdóttir, Glódís Perla Viggósdóttir, Hallbera Guðný Gísladóttir, Sara Björk Gunnarsdóttir, Fanndís Friðriksdóttir og Harpa Þorsteinsdóttir.
Sara Björk Gunnarsdóttir tekur við fyrirliðabandinu af Margréti Láru Viðarsdóttur. Tveir leikmenn eru utan hóps að þessu sinni og það eru Sonný Lára Þráinsdóttir og Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir.
Byrjunarliðið er þannig skipað:
Markvörður: Sandra Sigurðardóttir
Hægri bakvörður: Elísa Viðarsdóttir
Miðverðir: Glódís Perla Viggósdóttir og Sif Atladóttir
Vinstri bakvörður: Hallbera Guðný Gísladóttir
Tengiliðir: Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði, Málfríður Erna Sigurðardóttir og Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
Hægri kantur: Elín Metta Jensen
Vinstri kantur: Fanndís Friðriksdóttir
Framherji: Harpa Þorsteinsdóttir
Freyr gerir fimm breytingar á liðinu sem burstaði Skota

Tengdar fréttir

Skotarnir áttu aldrei séns eftir að stelpurnar okkar sáu þetta myndband
Íslenska kvennalandsliðið hefur sjaldan komið eins vel undirbúið til leiks og örugglega aldrei spilað jafnvel í jafnmikilvægum leik og í Skotlandi á dögum.

Skosku stelpurnar sluppu með skrekkinn í Minsk
Skoska kvennalandsliðið komst aftur í toppsæti íslenska riðilsins í undankeppni EM 2017 eftir nauman 1-0 útisigur á Hvíta-Rússland í Minsk í dag.

Stelpurnar komast ekki á EM með sigri í kvöld
Kvennalandsliðið verður í frábærri stöðu í riðlinum en farseðilinn verður ekki 100 prósent tryggður þrátt fyrir sigur.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Ísland - Makedónía 8-0 | Ísland hænuskrefi frá EM eftir markasúpu í Laugardalnum
Stelpurnar okkur eru nú hænuskrefi frá því að tryggja sér sæti á EM 2017 í Hollandi eftir stærsta sigur íslenska landsliðsins í undankeppnini til þessa.