Hér að neðan verður meðal annars farið yfir hvað gerðist í síðasta þætti Game of Thrones, eldri þáttum og bókunum.
Þeir sem ekki vilja vita meira ættu að hætta hér. Ykkur hinum er velkomið að fletta áfram.
Maður fær á tilfinninguna að framleiðendurnir séu nú búnir að stilla upp öllum atriðum og að mikið eigi eftir að gerast í næstu þáttum.
Það er mjög sjaldgjæft að Game of Thrones byrji á atriði áður en „intro-ið“ er keyrt í gang, en það gerðist núna. Þá fengu áhorfendur að sjá að Sandor Clegane, eða Hundurinn, sé á lífi. Síðast þegar við sáum hann í fjórðu seríu hafði Brienne sært hann verulega og bitið af honum eyrað. Arya neitað að ganga frá honum og rændi hann frekar og skildi Sandor eftir til að deyja af sárum sínum.
Nú hefur komið í ljós að óhefðbundni presturinn Ray, sem leikinn var af Ian McShane, hafði fundið Sandor og hlúið að honum. (Áhugasamir geta lesið viðtal við McShane hér)
Meðal annars kynntumst við Lyönnu Mormont, sem var hreint út sagt frábært. Arya virtist í miklum vandræðum. Jamie Lannister og Bronn eru saman á nýjan leik. Margaery kom þeim skilaboðum áleiðis að hún er að þykjast vera í liði með trúnni og æðsti presturinn gaf henni einkennilegt hjónabandsráð.
Jon Snow og Sönsu gekk illa að safna liði gegn Ramsay. Yara Greyjoy er lúmskt góður sálfræðingur og Jóhannes Haukur mun líklega ekki lifa lengi í þáttunum.
Fjallið og menn hans sátu þó fyrir Dondarrion og félögum og stráfelltu þá. Dondarrion og fleiri eftirlifendur sátu fastir á bakvið víglínur óvina og þar réðust þeir gegn birgðalínum Lannister hersins. Eftir einhvern tíma ákváðu þeir þó að hætta að berjast fyrir konunga og þess í stað berjast fyrir fólkið.
Dondarrion lifði reyndar orrystuna ekki af, en var lífgaður við með töfrum rauðs prests.
Jóhannes og félagar hans tveir virtust hins vegar hafa myrt fjölda fólks og reitt Sandor Clegane til reiði. Mögulega eru þeir hættir að berjast fyrir fólkið, eða hugsanlega voru einhverjir aðrir sem myrtu fólkið og Ray.
Hver sem tilgangurinn var, er Sandor reiður og útlit er fyrir að hann ætli sér að berjast fyrir góð öfl eftir að hafa hlustað á Ray. Lesendur bókanna hafa lengi verið nokkuð borubrattir um að Sandor myndi snúa aftur og er sterklega ýjað að því að hann sé á lífi. Aðstæður hans eru þó töluvert öðruvísi í þáttunum en í bókunum.
Það er margt við þetta atriði og önnur atriði Aryu í þættinum sem þykir skrítið.
Arya er örvhent og Maise Williams, sem leikur hana, hefur sagt frá því að erfitt hafi verið að leika örvhenta persónu þar sem hún er rétthent.
Þarna sést Arya hins vegar nota hægri höndina nokkrum sinnum. Til dæmis þegar hún kastar peningapokum á borð kaupmannanna við að panta far með skipi þeirra aftur til Westeros.
Önnur kenning er að í raun hafi Jaqen H'gar verið dulbúinn sem Arya. Hann skuldar Aryu líf sitt frá því í annarri þáttaröð þegar hann bauð henni að nefna þrjú nöfn og að þeir sem hún nefndi myndu deyja.
Arya nefndi Jaqen H'gar á nafn og mögulega telur hann sig skulda Aryu líf sitt. Þá er vert að taka fram að hann skipaði Waif að láta Aryu ekki þjást, en hún kaus þess í stað að stinga hana margsinnis í magan. Sem endaði ekki vel.
Hann kom að sonum Walder Frey, Black Walder og Lothar, þar sem þeir virtust hársbreidd frá þvi að þvinga Blackfish til að gefast upp. Til þess notuðu þeir Edmure Tully, frænda Brynden og bróður Catelyn Stark, og hótuðu þeir að drepa hann.
Jamie var fljótur að taka yfir stjórn umsátursins og ræddi við Brynden Tully.
Stóra spurningin er hins vegar hvort að endurkom Brynden og Bræðralagsins bjóði upp á endurkomu annarrar persónu. Það er frænku Brynden, Catelyn Stark. (Einmitt sú Catelyn Stark)
Hún snýr nefnilega aftur frá dauðum í bókunum, eins og svo margir aðrir. Eftir að hún er skorin á háls af syni Walder Frey er líki hennar kastað í ána. Þremur dögum seinna finnur enginn annar en áðurnefndur Beric Dondarrion hana og reynir hann að fá rauða prestinn Thoros of Myr til að lífga hana við, eins og hann hafði nokkrum sinnum gert við Dondarrion, en hann neitaði og sagði hana of illa farna.
Þess í stað fórnar Dondarrion lífi sínu til að fylla Catelyn aftur af lífi. Hún er þó ekki lengur Catelyn Stark og tekur upp nafnið Lady Stoneheart.
Stoneheart tekur við stjórninni í Bræðralaginu og beitir þeim af öllu afli gegn öllum þeim sem hún telur hafa átt þátt í dauða síns og sonar síns Robb. Sérstaklega beitir hún sér gegn Lannister ættinni. Hvort sem þeir eru ungir eða aldnir og tilheyra Bolton ættinni, Lannister eða Frey, hengir hún þá eða myrðir á annan hátt.