Ullaræði Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 7. júlí 2016 17:15 Með fjölgun ferðamanna hefur orðið mikill vöxtur í sölu á íslenskum varningi, sérstaklega ullarfatnaði. Í því sem mætti kalla ullaræði hefur orðið vart við fölsun og vörusvik; vörur sem ekki eru úr íslensku hráefni eða framleiddar hér á landi eru seldar sem slíkar. Í aðsendri grein í Fréttablaðinu í gær segir Páll Kr. Pálsson, framkvæmdastjóri Varma sem hefur framleitt ullar- og skinnavörur á Akureyri í þrjátíu ár, að fyrirtækið þurfi að hætta starfsemi sinni fyrir norðan. Ástæðan sé sú að stjórnvöld leyfi að svindlað sé á neytendum með því að heimila innfluttar vörur án upprunamerkinga. Kristjana Guðbrandsdóttir, blaðamaður Fréttablaðsins, skrifaði á dögunum úttekt um ullariðnaðinn. Þar tóku margir sem koma að þessum vettvangi undir sjónarmið Páls. Vörur eru fluttar inn og seldar með íslensku yfirbragði og erlendri ull er blandað við þá íslensku. Þuríður Einarsdóttir hjá Handprjónasambandinu sagði ábyrgð stjórnvalda ríka. „Það eru reglur um upprunavottorð um ýmsa vöru en það virðist ganga hægt þegar kemur að fatnaði.“ Um er að ræða mikilvægt neytendamál, sem og iðnaðarmál. Það er klárt að rétt eins og neytendur eru tilbúnir að borga meira fyrir rauðvín sem er framleitt á ákveðnum svæðum erlendis, íslenskt lambakjöt og vöru frá ákveðnum hönnuðum, bæði innlendum og erlendum, þá stendur íslensk ullarvara fyrir ákveðin gæði. Engum verður meint af því að kaupa ullarpeysu sem er framleidd úr íslenskri ull sem hefur verið þynnt út með erlendri ull, en það eru samt sem áður ekki þau gæði sem verið er að greiða fyrir. Þeir sem framleiða sína vöru erlendis, en nota íslenskt hráefni og íslenska hönnun, eiga að vera stoltir af því og sýna neytendum sínum þá virðingu að merkja vörur sínar með réttum hætti. Í ullarúttektinni sagði Bjarney Harðardóttir, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar 66°Norður, að fyrirtækið vildi ekki fela að það framleiddi vörur sínar erlendis. „Við erum íslenskt vörumerki hvort sem vörur okkar eru framleiddar hér heima eða ytra.“ Í grein Páls kom fram að hann hefði reglulega vakið athygli stjórnsýslunnar á óréttlæti í merkingarmálum án þess að neitt hafi verið gert. Í svörum innanríkis- og iðnaðarráðuneyta í Fréttablaðinu í dag kemur fram að starfshópur hafi aðeins skilað af sér niðurstöðu sem tók til notkunar íslenska þjóðfánans við markaðssetningu á vöru og þjónustu. Iðnaðarráðherra segir tilefni til að skoða málin þegar þing kemur saman í haust. Það er greinilega full ástæða til að taka þessi mál til ítarlegrar skoðunar. Það eru engar ástæður til að setja hér boð og bönn og loka landinu fyrir erlendri framleiðslu. Það er hins vegar sjálfsögð kurteisi að gera framleiðendum að merkja vörur sínar með réttum hætti og vernda þannig í leiðinni íslenskan iðnað og þau gæði sem hann stendur fyrir. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Fanney Birna Jónsdóttir Mest lesið Flokkur fólksins eða flokkun fólksins? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir Skoðun Íslendingar flytja út fisk og líka ofbeldismenn Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Hver ætlar að bera ábyrgð á mannslífi? Sævar Þór Jónsson Skoðun Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 2/3 Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun 30 silfurpeningar dýralækna? 125.000 lítrar af blóði tappaðir af 4088 merum (með valdi), af eiðsvörðum dýralæknum, 2023 Ole Anton Bieltvedt Skoðun Horfumst í augu Kristín Thoroddsen Skoðun Lægjum öldurnar Halla Hrund Logadóttir Skoðun Opið bréf til heilbrigðisráðherra: Iðjuþjálfar – mikilvægur mannauður í geðheilbrigðisþjónustu framtíðarinnar Erna Rut Elvarsdóttir,Lilja Logadóttir, Rebekka Lind Hjaltadóttir,Sandra Dís Sigurðardóttir Skoðun Er aldur bara tala? Teitur Guðmundsson Skoðun Saga Israa á Gaza og hvernig hægt er að verða að liði Katrín Harðardóttir,Israa Saed Skoðun
30 silfurpeningar dýralækna? 125.000 lítrar af blóði tappaðir af 4088 merum (með valdi), af eiðsvörðum dýralæknum, 2023 Ole Anton Bieltvedt Skoðun
Opið bréf til heilbrigðisráðherra: Iðjuþjálfar – mikilvægur mannauður í geðheilbrigðisþjónustu framtíðarinnar Erna Rut Elvarsdóttir,Lilja Logadóttir, Rebekka Lind Hjaltadóttir,Sandra Dís Sigurðardóttir Skoðun
30 silfurpeningar dýralækna? 125.000 lítrar af blóði tappaðir af 4088 merum (með valdi), af eiðsvörðum dýralæknum, 2023 Ole Anton Bieltvedt Skoðun
Opið bréf til heilbrigðisráðherra: Iðjuþjálfar – mikilvægur mannauður í geðheilbrigðisþjónustu framtíðarinnar Erna Rut Elvarsdóttir,Lilja Logadóttir, Rebekka Lind Hjaltadóttir,Sandra Dís Sigurðardóttir Skoðun