Ólafur ekki að reyna að breyta of miklu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. júlí 2016 18:30 Ólafur Kristjánsson á bekknum hjá Randers. Vísir/Getty
Johnny Thomsen, reynsluboltinn í danska liðinu Randers FC, er ánægður með nýja þjálfarann sinn en Íslendingurinn Ólafur Kristjánsson tók við danska úrvalsdeildarliðinu í sumar. Ólafur Kristjánsson tók við liðinu af Colin Todd en bakvörðurinn er sáttur við að íslenski þjálfarinn hafi ekki gert of mikið af breytingum. „Ég hef ekki séð mikið af breytingum en leikur okkar er beinskeyttari. Það er eitthvað sem Ólafur er að reyna að koma inn hjá liðinu," sagði Johnny Thomsen við bold.dk. „Ólafur kom ekki hringað til að umbreyta öllu. Hann er að koma í lið þar sem hlutirnir hafa gengið vel. Við erum bara að reyna að byggja ofan á það," sagði Thomsen. Randers tapaði 1-0 á móti AaB um helgina og hefur aðeins fengið eitt stig út úr fyrstu tveimur leikjum tímabilsins. Liðið gerði 2-2 jafntefli við Midtjylland í fyrsta leik. „Við erum ekki að gefa mikið af færum á okkur. Við erum skipulagðir og það er erfitt að spila á móti okkur. Við vitum það líka að við þurfum að skapa okkur fleiri færi en við höfum gert í fyrstu tveimur leikjunum. Ólafur er líka að vinna fyrir því," sagði Thomsen. „Ég er viss um að við verðum betri og betri í næstu leikjum. Næst er spennandi bardagi í Árósum. Þeir hafa reyndar byrjað betur en við en ég sá þarna góðan möguleika fyrir okkur til að vinna góðan sigur," sagði Thomsen.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Handbolti „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Ósætti við úrelta löggjöf: „Sennilega eina þjóðin eftir í heiminum“ Sport „Vil miklu frekar eiga feril í MMA heldur en að vinna skrifstofustarf“ Sport Tyson segist ekki berjast vegna peninganna Sport Tekur með sér lifrarpylsu, grjónagraut og sviðasultu í bakgarðshlaupið Sport Óttast um öryggi fjölskyldunnar og neyðist til að flytja Sport Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Handbolti Víkingar spila á Íslandi í dagsbirtu Fótbolti Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Enski boltinn Fleiri fréttir Alisson tæpur fyrir leikinn gegn Bournemouth Var kennari og þjálfaði karlalið þegar hann stýrði kvennalandsliðinu Segir Arsenal sífellt betra en vill engar ásakanir um sálfræðistríð Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Segir að Saliba og Gabriel séu besta miðvarðapar í Evrópu Víkingar spila á Íslandi í dagsbirtu Viðurkennir að hafa sleppt því að spjalda Messi til að fá treyjuna hans Sjáðu ótrúlega vörslu Raya og öll mörkin úr Meistaradeildinni Segir Leipzig hinn fullkomna áfangastað fyrir unga og efnilega leikmenn Seinna spjaldið var ekki viljandi: „Er bara pirraður og missi hausinn“ „Ein besta markvarsla sem ég hef séð“ Atlético lagði sprækt lið Leipzig Rautt spjald snemma leiks dýrt spaug fyrir Börsunga Raya hetjan er Skytturnar lögðu rútunni í Bergamo Benfica og Leverkusen byrja á sterkum útisigrum Uppgjörið: Afturelding - Fjölnir 3-1 | Brenndu víti en tóku tveggja marka forystu Úlfur Ágúst orðaður við Messi og félaga á Miami Sparkað eftir tapið rosalega gegn Bayern Trompaðist eftir misheppnaða hælsendingu í dauðafæri: „Nei! Nei! Nei!“ Húbba Búbba kippt af dagskrá: „Það eina sem ég spila í Víkinni er fótbolti“ Með tvær ferðatöskur af fíkniefnum Haaland neitaði að gefa Acerbi treyjuna sína eftir að hann hafði ítrekað togað í hana Næstu mótherjar Íslands mun ofar á heimslista Fannst stemningin á Etihad steindauð Eftirsjá Gary Martin: „Mín skoðun, fólk mun ekki vera sammála henni“ Hafi snúist hugur og vilji nú fara til Liverpool Utan vallar: Total-fótboltamaðurinn sem rétti Blikakúrsinn Sjáðu öll mörkin og ævintýralegt klúður Gazzaniga Segir að hann myndi kýla netníðingana í nefið ef þeir stæðu fyrir framan hann „Ég á Íslandi líf mitt að þakka“ Sjá meira