Þetta er meðal þess sem kom fram í viðtali sem Hjörtur Hjartarson tók við Guðmund í útvarpsþættinum Akraborgin á X-inu í gær.
Sem kunnugt er gerði Guðmundur danska handboltalandsliðið að Ólympíumeisturum í fyrsta sinn um helgina. Danir unnu þá frækinn tveggja marka sigur, 28-26, á Frökkum í úrslitaleik og tryggðu sér gullverðlaun.
Þetta er í ekki fyrsta sinn sem Guðmundur stýrir liði í verðlaunasæti á Ólympíuleikum en undir hans stjórn endaði íslenska landsliðið í 2. sæti á Ólympíuleikunum í Peking fyrir átta árum. Líkt og Danir í ár mættu Íslendingar Frökkum í úrslitaleiknum.
„Maður þarf að hafa trú á verkefninu og trúa því að það sé hægt að fara alla leið. Það er stór þáttur í þessu,“ sagði Guðmundur sem lagði mikið upp úr andlega þættinum í undirbúningnum fyrir úrslitaleikinn gegn Frökkum.

„Ég hef tekið þann pólinn í hæðina, og það er sannleikurinn, að ég einbeiti mér fullkomlega að liðinu og minni vinnu. Ég hef alltaf trúað á að væri að gera góða hluti þrátt fyrir að margir sérfræðingar, og þeir eru margir í Danmörku, hafi t.a.m. efast um að varnarleikurinn væri nógu góður,“ sagði Guðmundur og bætti við að það væri lykilatriði að vera trúr sinni sannfæringu.
„Ég hef ekkert hlustað á það og haldið minni stefnu. Það er gríðarlega mikilvægt að láta ekki toga sig út og suður.“
En hefur gagnrýnin truflað Guðmund?
„Á einhverjum tímapunkti gerði það sjálfsagt það. En ég hef verið mjög harður við sjálfan mig að lesa ekki blöðin,“ sagði Guðmundur.
Líkt og þegar hann valdi íslenska hópinn fyrir Ólympíuleikana í Peking 2008 kom Guðmundur að sumu leyti á óvart með liðsvali sínu í ár. Hornamaðurinn frábæri Hans Lindberg þurfti t.a.m. að sætta sig við að vera svokallaður fimmtándi maður í Ríó. Þá veðjaði Guðmundur á Morten Olsen, 31 árs gamlan leikstjórnanda sem hafði enga reynslu af stórmótum.

„Svo tók ég leikstjórnanda sem hefur aldrei fengið tækifæri með landsliðinu. Morten Olsen er 31 árs en ég valdi hann. Það þótti mörgum undarlegt en hann reyndist svo vera einn besti leikmaður liðsins.“
Þrátt fyrir að stýra liði til sigurs á Ólympíuleikunum fékk Guðmundur ekki gullmedalíu eins og leikmenn danska liðsins.
„Það er hundfúlt að fá ekki pening og hið versta mál,“ sagði Guðmundur og hló.
„Mér finnst þetta sérstakt. Í hópíþróttum er þjálfarinn svo stór hluti af leiknum og gangi hans. Mér finnst að það ætti að breyta þessu,“ bætti Ólympíumeistarinn Guðmundur Guðmundsson við.
Hlusta má á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að ofan.