Níuhundruð miðar á leik Íslands og Tyrklands í undankeppni HM 2018 fara í sölu á hádegi á morgun.
Um er að ræða miða, um 900 talsins, sem teknir voru frá fyrir stuðningsmenn Tyrkja en verða ekki notaðir. Miðarnir sem fara í sölu eru í hólf: B, J, K og T.
Miðasalan fer fram, sem fyrr, í gegnum miðasölukerfi hjá www.midi.is.
Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli, sunnudaginn 9. október, og hefst kl. 18:45.
