Bankastarfsmaðurinn Anne Rendall tók á móti blómvendi sem milljónasti flugfarþeginn en hún hefur flogið rúmlega 10 þúsund sinnum til að komast milli heimilis sína og vinnu milli eyjanna Westray og Papa Westray á Orkneyjum.
Jonathan Hinkles, framkvæmdastjóri Loganair, segir flugleiðina sannkallaða perlu í leiðakerfi flugfélagsins og vel þekkta í heimi flugsins. „Þrátt fyrir þessa frægð, þá er flugleiðin nauðsynleg líflína fyrir fólk á Orkneyjum, með því að tengja eyjar með þægilegri flugleið.“
Í frétt Sky News segir að kennarar, læknar, lögreglumenn og nemendur nýti sér leiðina á hverjum degi.
Flugleiðin tekur vanalega um tvær mínútur en með hagstæðri vindátt má ljúka henni á 47 sekúndum.
Átta sæta vél er nýtt á flugleiðinni sem er 2,7 kílómetra löng og hefur verið starfrækt síðan 1967.