Glódís framlengir í Eskilstuna Tómas Þór Þórðarson skrifar 7. desember 2016 13:45 Glódís Perla Viggósdóttir verður áfram hjá Eskilstuna. mynd/eskilstuna united
Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðsmiðvörður í fótbolta, er búin að framlengja samning sinn við sænska úrvalsdeildarliðið Eskilstuna United um eitt ár. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Glódís Perla, sem er 21 árs gömul, gekk í raðir Eskilstuna frá Stjörnunni í fyrra og spilaði alla 22 leikina tímabilið 2015 í byrjunarliðinu er Eskilstuna háði mikla baráttu við Rosengård um sænska meistaratitilinn. Í ár spilaði Glódís 20 leiki af 22 og aftur alla í byrjunarliðinu en hún er algjör lykilmaður í liði Eskilstuna sem hafnaði í öðru sæti í fyrra og í þriðja sæti í ár. Glódís var eini lykilmaðurinn sem Eskilstuna átti eftir að semja við og fagna menn þar á bæ mjög að halda íslenska miðverðinum sem samdi til eins árs í viðbót. „Ég er mjög ánægð að vera ár til viðbótar í Eskilstuna. Félagið er alltaf að verða flottara og mig langar að vera áfram hluti af því. Vonandi get ég gert enn betur fyrir félagið á næstu leiktíð og orðið betri sem leikmaður,“ segir Glódís Perla á heimasíðu Eskilstuna. Glódís er fastamaður í byrjunarliði íslenska landsliðsins sem verður í þriðja sinn í röð á meðal þátttökuþjóða á EM sem fram fer í Hollandi næsta sumar.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Bað kærastann sinn afsökunar Sport Konunum fórnað í peningavandræðum karlaliðs Barcelona Fótbolti Donnarumma sagður á leið til City í sögulegum skiptum Fótbolti „Fáránleg staða sem er komin upp“ Enski boltinn Spáir Bröndby sigri í einvíginu á móti Víkingum Fótbolti Vill þjóðina upp á dekk: „Langt síðan við höfum átt alvöru heimavöll“ Fótbolti Gullsending Sveindísar Jane valin sú besta Fótbolti Rashford segir Man. United fast í einskismannslandi Enski boltinn Hent út úr Tottenham liðinu fyrir óstundvísi Enski boltinn Mótherjarnir afsaka sig fyrir fram: „Hvort sem það er leikrit eða ekki“ Fótbolti Fleiri fréttir Guðmundur í grænt Willum lagði upp sigurmark Birmingham Njarðvík með fjögurra stiga forskot á toppnum PSG kom til baka og vann Ofurbikarinn í vítakeppni Uppgjörið: Valur - Stjarnan 4-2 | Rhodes með þrennu í seinni hálfleik Jón Daði skoraði fyrsta markið fyrir Selfoss í þrettán ár og Fylkir á botninum Jason Daði og félagar fá Rauðu djöflana í heimsókn Mótherjarnir afsaka sig fyrir fram: „Hvort sem það er leikrit eða ekki“ Hártog er harðbannað og ekki skylda að vera með tagl Vill þjóðina upp á dekk: „Langt síðan við höfum átt alvöru heimavöll“ Brøndby brennir skipin: „Verðum að sækja og svo verðum við að sækja meira“ Enska augnablikið: Hugsaði til van Persie eftir frægt mark í Eyjum Matthías ekki lengi einsamall hjá Val Rashford segir Man. United fast í einskismannslandi Donnarumma sagður á leið til City í sögulegum skiptum Grealish valdi númerið sitt vegna Rooney og Gascoigne Fyrirmenni fótboltans á Norðurlöndum mæta til Íslands í vikunni Stjarnan sækir landsliðsfélaga Caulker „Fáránleg staða sem er komin upp“ Stuðningsmenn Chelsea bjartsýnastir en mjög svartsýnir hjá Newcastle Spáir Bröndby sigri í einvíginu á móti Víkingum „Er að koma inn í hlutverk sem ég veit að ég er góð í“ „Einhver vildi losna við mig“ Gullsending Sveindísar Jane valin sú besta Enska augnablikið: Hefði gengið af Hjálmari dauðum Konunum fórnað í peningavandræðum karlaliðs Barcelona Hent út úr Tottenham liðinu fyrir óstundvísi Vildi hvergi annarsstaðar spila Lehmann færir sig um set á Ítalíu Enrique staðfestir að Donnarumma sé á förum frá PSG Sjá meira