Ólafía Þórunn er 24 ára Reykvíkingur, þrefaldur Íslandsmeistari í golfi og útskrifaðist frá Wake Forest-háskólanum í Norður-Karólínu árið 2014. Eftir útskrift hefur hún einbeitt sér að atvinnumannaferlinum í golfi.
Í lok árs 2014 freistaði hún þess að komast í gegnum úrtökumótaröðina fyrir Evrópumótaröðina í golfi en það gekk ekki í fyrstu tilraun. Ári síðar komst hún í gegn og keppti á Evrópumótaröðinni á árinu – alls níu mótum en hún komst í gegnum niðurskurðinn á fjórum þeirra.
En árangur helgarinnar er mesta afrek hennar á ferlinum og segir hún sjálf að það sé það stærsta sem hún hefði getað ímyndað sér, hingað til.
„Nú ætla ég að setja markið enn hærra,“ segir hún í samtali við Fréttablaðið. „Næsta mögulega skref er að vinna mót. Og það ætla ég mér að gera. Maður verður að vinna að því að ná einhverju markmiði,“ segir hún enn fremur.
Vakin af risastórri könguló
Viðbrögðin við árangri Ólafíu Þórunnar hafa ekki látið á sér standa hér á landi. Afrekið hefur vakið gríðarlega athygli og hefur hamingjuóskum og skilaboðum rignt yfir Ólafíu Þórunni.
„Vá. Ég er rétt svo hálfnuð að lesa þetta allt saman. Það er mjög mikið af skilaboðum og alls konar efni, sem er mjög gaman að sjá,“ segir hún enn fremur.
Hún vaknaði þó ekki með bros á vör, morguninn eftir að hún vann afrekið. Þvert á móti.
„Klukkan hálf sex í morgun [gærmorgun] fann ég að eitthvað var að skríða á mér. Ég þreifaði fyrir mér og greip í risastóra könguló. Ég vaknaði því í sjokki. Þetta var afar óhugnanlegt,“ segir hún og getur leyft sér að hlæja að öllu saman nú.

Eitt fyrsta verkið hennar í gær var að fara á fund fyrir nýliða LPGA-mótaraðarinnar. „Þar var helst verið fara yfir mál sem snerta lyfjaeftirlit og sjúkratryggingar. Þá fengum við einnig lista yfir mót ársins og hversu mörg mót maður getur átt von á að komast inn í,“ segir hún.
Þrátt fyrir að hún hafi fengið keppnisrétt á mótinu er hún í um 120. sæti forgangslistans. Um 110-130 keppendur eru á flestum mótum og því ekki víst að hún komist ávallt að, sérstaklega ekki á stærstu mótunum.
Líklegt er að henni bjóðist að spila á um það bil átján mótum og segir hún að hún muni sækjast eftir því að spila á eins mörgum mótum og mögulegt er.
Og hún óttast ekki að etja kappi við þær bestu í heimi. „Alls ekki. Ég hef nú reynslu af því að spila við þær bestu á Evróputúrnum og ég óttast ekki að spila við stóru stjörnurnar í Bandaríkjunum.“

Ólafía Þórunn hefur hingað til verið styrkt af Forskoti, afrekssjóði kylfinga, en vonast til að fleiri fyrirtæki á Íslandi leggi henni lið. „Það er ljóst að ég þarf á stuðningnum að halda enda verður þetta afar kostnaðarsamt.“
Hugsar ekki um peningana
Mun meira verðlaunafé er í boði á LPGA-mótaröðinni en evrópsku mótaröðinni. En til að fá peningaverðlaun þarf ekki eingöngu að taka þátt í mótinu, heldur komast í gegnum niðurskurðinn. Og samkeppnin er afar hörð á bestu mótaröð heims.
Hún segist ekki ætla að spila til að afla sér tekna. „Það er ekki sniðugt að setja slíka pressu á sig. En auðvitað var markmiðið að komast á þessa mótaröð, enda sú besta sem völ er á auk þess sem fleiri mót eru í boði og meiri peningur.“