Ólafía lék holurnar átján á sex höggum undir pari og er þar með á fjórum höggum undir pari eftir fyrstu tvo keppnisdagana.
Ólafía var í sjöunda sæti þegar hún lauk keppni í dag og hafði þar með hækkað sig um 65 sæti.
Hún hóf daginn í 72.til 91. sæti. Tuttugu efstu tryggja sér fullan keppnisrétt á LPGA-mótaröðinni en Ólafía þarf að enda í einu af 20 efstu sætunum að loknum fimmta hringnum sem fram fer á sunnudaginn.
Ólafía lék fyrsta daginn á tveimur höggum yfir pari en hún spilaði þá Hills-völlinn sem er mjög krefjandi. Það mátti sjá bæði á skori kylfinga í gær og í dag.
Ólafía nýtti sér það vel að vera að spila Jones-völlinn í dag og það var frábært að sjá hana safna fuglunum.
Ólafía byrjaði á tíundu holunni og lék því seinni níu holurnar fyrst. Hún var á tveimur höggum undir pari eftir fyrstu níu holurnar (þrír fuglar, einn skolli). Ólafía var síðan sjóðandi á seinni níu þar sem hún var með fjóra fugla og engan skolla.
Ólafía fékk alls sjö fugla í dag og einn skolla. Eftir fjóra skolla á fyrstu sjö holunum í gær hefur hún spilað mjög vel. Ólafía er sjö undir á síðustu 29 holunum sínum.
Hér fyrir neðan má sjá hvernig annar dagurinn gekk fyrir sig en hann var í beinni textalýsingu hér inn á Vísi.