Körfubolti

Haukur Helgi og félagar hringdu inn jólin með sigri

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Haukur Helgi Pálsson og félagar í franska B-deildarliðinu Rouen hringdu inn jólin með fjögurra stiga sigri, 79-83, á Boulogne-sur-Mer í kvöld.

Þetta var aðeins þriðji sigur Rouen í vetur en liðið vermir botnsæti deildarinnar.

Haukur Helgi og félagar voru sjö stigum undir fyrir lokafjórðunginn en tryggðu sér sigurinn með því að vinna hann 22-11.

Haukur Helgi spilaði í 35 mínútur í leiknum í kvöld og stóð fyrir sínu. Landsliðsmaðurinn skoraði sjö stig, tók sex fráköst og gaf fjórar stoðsendingar.

Næsti leikur Rouen er gegn Ada Blois 27. desember.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×