Næsta ár var förinni heitið til N-Ameríku og þar eknir 28.000 kílómetrar á bílgerðunum Land Cruiser, Tundra, Highlander, Camry, Corolla og Mirai. Bílunum var ekið í sama tilgangi, að finna gallana ef einhverjir væru og spjalla í leiðinni við aðra Toyota eigendur og Toyota umboð og fá svör við því hvort yfir einhverju væri að kvarta eða betur mætti fara í smíði bílanna.
Á nýliðnu ári stóð þriðji reynsluaksturinn yfir og farið um S-Ameríku og á bílgerðunum Land Cruiser, Hilux, Fortuner, RAV4, Etios, Corolla og Prius. Næstu 3 ár verður farið í samskonar ferðir um Evrópu, Asíu og Afríku og árið 2020 verður farin ferð um Japan, en þar í landi verða Ólympíuleikarnir haldnir og markar það ár síðasta árið sem þessi ógnarlangi reynsluakstur fer fram, alls í 7 ár.
Þá verða alls 210.000 kílómetrar lagðir að baki og vonandi í leiðinni komin mörg svör um gæði bílanna og vankanta sem nýtast má til enn betri framleiðslu á Toyota bílum. Þá verða þátttakendur í akstrinum langa orðnir 1.000 talsins og það flestir starfsmenn Toyota. Afar metnaðarfullt verkefni hjá Toyota og örugglega í leiðinni skemmtilegt, en umfram allt gagnlegt. Í leiðinni er það mjög lýsandi fyrir stöðugan ásetning þeirra Toyota manna að bæta bíla sína sem mest má vera.
