
Ólafía Þórunn: Hugsa aðeins um eitt högg í einu
Hún ræddi við Pál Ketilsson á kylfingur.is en viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.
Ólafía fylgdi eftir góðum fyrsta hring með enn betri öðrum hring en hún er á sjö höggum undir pari eftir tvo hringi í frumraun sinni meðal þeirra bestu.
„Eins og staðan er núna er ég búinn að gera allt vel. Þetta er fyrsti hringurinn á móti sem ég spila þar sem ég tapa ekki höggi en ég gerði mér ekki grein fyrir því fyrr en eftir á.“
Ólafía komst í gegn um niðurskurðinn strax í fyrstu tilraun en hún sagði það hafa verið markmiðið.
„Ég hafði alveg trú á því að ég gæti komist í gegn en ég reyndi að hugsa ekki mikið um það. Ég reyndi að slá bara eitt högg í einu og gera mitt besta og sjá hvert það myndi skila mér.“
Ólafía sagðist ekki geta kvartað undan aðstæðum á Bahamaeyjum þar sem sólin skín.
„Það eru bara ótrúlega góðar aðstæður, smá vindur en það er ekki hægt að kvarta,“ sagði Ólafía kát.
Golfstöðin hefur sýnt frá fyrstu tveimur keppnisdögunum en þar sem útsendingartími mótsins skarast við útsendingartíma Farmers Insurance mótið á PGA-mótaröðinni verður sýnt frá Pure Silk-mótinu á Stöð 2 Sport 4. Útsendingin, sem hefst klukkan 20.00, verður aðgengileg fyrir áskrifendur Golfstöðvarinnar.
Þá verður vitaskuld bein textalýsing frá gangi mála á íþróttavef Vísis.
Tengdar fréttir

Ólafía komst örugglega í gegnum niðurskurðinn
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, komst í gegnum niðurskurðinn á Pure Silk Bahama Classic-mótinu á Bahamaeyjum.

Nýtt vallarmet sett á Bahamaeyjum í gær
Ólafía er í tuttugasta sæti fyrir þriðja hringinn á Pure Silk Bahama Classic-mótinu á LPGA-mótaröðinni en efstu kylfingarnir hafa leikið hreint út sagt ótrúlegt golf á fyrstu tveimur dögunum.

Ólafía Þórunn í 37. sæti eftir fyrsta keppnisdaginn á Bahamaeyjum
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er í 37. sæti eftir fyrsta hringinn á Pure Silk Bahama Classic-mótinu á Bahamaeyjum. Mótið er hluti af LPGA mótaröðinni.

Ólafía Þórunn í 69. sæti eftir erfiðan þriðja hring
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, kylfingur úr GR, náði sér ekki jafn vel á strik þriðja hring á Pure Silk Bahama Classic-mótinu á Bahamaeyjum í dag en Ólafía lék hringinn á 77 höggum, fjórum höggum yfir pari.

Ólafía Þórunn: Upphafshöggin voru lengri í dag en fyrir nokkrum vikum
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir gerði góða hluti á fyrsta hringnum á Pure Silk Bahama Classic-mótinu á Bahamaeyjum í dag.

Ólafía Þórunn: Mjög gott að vera ekki með skolla
Það var skiljanlega létt yfir Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur eftir að hún lauk keppni á öðrum degi Pure Silk Bahama Classic-mótsins á Bahamaeyjum.

Ólafía Þórunn færist á Stöð 2 Sport 4
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur keppni á þriðja degi á Pure Silk Bahama Classic-mótinu á Bahamaeyjum klukkan 17:23.

„Ólafía mun vinna mót og ég er ekki að djóka“
Fólkið hennar Ólafíu Þórunnar Kristinsdóttur hefur tröllatrú á sinni konu.

Ólafía Þórunn örugg með verðlaunafé
Fær ekki minna en 250 þúsund krónur en fær vel yfir milljón með sama áframhaldi.

Frábær fyrsti hringur hjá Ólafíu Þórunni
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, lék einkar vel á fyrsta degi Pure Silk Bahama Classic-mótinu á Bahamaeyjum.

Sjáðu Ólafíu stíga sín fyrstu spor á LPGA
Ólafía Þórunn kynnt til leiks í fyrsta sinn á LPGA-mótaröðinni og hennar fyrstu högg á myndbandi.