Volvo V90 og S90 bílarnir leysa af Volvo S80 og V70 bílana og voru kynntir til leiks á seinni hluta síðasta árs. Það er þó dagljóst að Volvo hefur ekki helst hugsað til Bandaríkjamarkaðar með framleiðslu V90 langbaksins því þar í landi er afar lítill markaður fyrir langbaka. Svo rammt kveður við þar að bæði BMW og Mercedes Benz hafa hætt að selja langbaksgerðir sínar þar í landi og Cadillac hefur hætt við smíði allra langbaka, þeir einfaldlega seljast ekki.
Ógnarfallegur, innan sem utan
Volvo V90 og S90 eru stærstu fólksbílar sem Volvo smíðar og báðir afar myndarlegir vagnar, eins og flest nýtt sem frá Volvo kemur þessa dagana. Það verður ekki annað sagt að Volvo V90 sé einfaldlega gullfallegur bíll, sem mörgum finnst slá við þýskum samkeppnisbílum sínum í útliti. Þó svo V90 og S90 bílarnir séu báðir mjög svo fallegir bílar þá er það skoðun undirritaðs að V90 langbakurinn sé þeirra fríðari og á það gjarnan við langbaksgerðir bíla.
Það er ekki bara ytra útlit V90 sem er sláandi fallegt heldur á það einnig við innanrými bílsins. Þar ræður glæsileikinn ríkjum en í leiðinni skandínavískur einfaldleiki. Innanrými V90 og S90 bílanna er næstum eins og í jeppanum XC90 og er þar ekki leiðum að líkjast og hefur innrétting þeirra allra verið mærð og verðlaunuð frá komu þeirra.
Bara dísilvélar í boði
Vélarnar sem eru í boði í Volvo V90 á Íslandi eru því miður allar dísilvélar, 150, 190 og 235 hestafla og allar aðeins 2,0 lítra. Bera þær nöfnin D3, D4 og D5. Volvo mun einnig bjóða V90 og S90 bílana í T8 útgáfu sem er 407 hestöfl og knúinn bensínvél og rafmagnsmótorum. Þannig búinn eru þessir bílar orðnir að hreinræktuðum spyrnukerrum. Í reynsluakstri V90 að þessu sinni var 235 hestafla vélin undir húddinu og alveg óhætt er að segja að þar fari góður vélarkostur sem færir bros á andlit ökumanns. Með henni er alltaf nægt afl til taks og bíllinn togar eins og enginn sé morgundagurinn.
Þrátt fyrir allt þetta afl og 480 Nm tog er uppgefin eyðsla 4,9 lítrar á hverja 100 ekna kílómetra. Ekki náðist nú alveg sú tala í reynsluakstrinum, en bíllinn var með milli 7 og 8 lítra í eyðslu þó svo aksturinn færi að mestu fram á ágætum vegum Suðurlandsins, allt upp að Gullfossi. Þó nokkru munar á verði D3, D4 og D5 útgáfa V90. Ódýrasta útgáfan, D3 kostar frá 7.290.000 krónum en sú dýrasta, D5 í Inscription útfærslu kostar 9.290.000 kr. eða tveimur milljónum meira. Verð T8 útgáfunnar er ennþá óljóst.
Rafdrifnar tvær forþjöppur
Átta gíra sjálfskipting er tengd við dísilvélarnar í D4 og D5 útgáfunum, en 6 gíra sjálfskipting í D3 útgáfunni. Sú átta gíra reyndist mjög vel í reynsluakstrinum og skilaði miklu afli vélarinnar hnökralaust á öllu snúningssviðinu. Mikið afl dísilvélarinnar í D5 útgáfunni skýrist að miklu leiti af því að við hana eru tengdar tvær forþjöppur og rafdrifið kerfi sér um að fóðra þær lofti við inngjöf og með því gætir svo til einskis forþjöppuhiks og viðbragðið því með hreinum ágætum. Eftirtektarvert er hve þessi vél er hljóðlát og vart hægt að finna þessu jöfnuð í neinum öðrum dísilbíl keppinautanna. Aksturseiginleikar V90 eru frábærir og guð hvað þessi bíll fer vel með farþega hans alla, ekki síst fyrir frábær sæti bílsins.
Flutningsrými V90 er gott og ætti að duga flestum 363 daga ársins, en þó verður að segja að bilið milli gólfs og þaks í rýminu sé ekki sérlega mikið. Það er langt í frá slæmur kostur að geta keypt einn fallegasta bíl götunnar í dag og í leiðinni einn þann stærsta í fólksbílaflokki á rúmlega 7 milljónir króna. Þó mun það vafalaust freista margra að bæta við tveimur milljónum og fá þá bíllinn með öskrandi afli og í sparifötunum. Fyrir þá milligjöf má þó kaupa eins og einn smábíl. En þegar öllu er á botninn hvolft eru allar útgáfur þessa ógnarfallega bíls verðs síns virði. Þessi bíll er rós í hnappagat Volvo og viðmið fyrir aðra bílaframleiðendur.
Kostir: Útlit, aksturseiginleikar, öryggi, búnaður
Ókostir: Engar bensínútgáfur í boði, erfitt að ná uppgefinni eyðslu
Dísilvél, 235 hestöfl
Framhjóladrif
Eyðsla frá: 4,9 l./100 km í bl. akstri
Mengun: 129 g/km CO2
Hröðun: 7,0 sek.
Hámarkshraði: 250 km/klst
Verð frá: 7.290.000 kr.
Umboð: Brimborg





