Hundraðasti sigurinn í röð kom í hús í nótt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. febrúar 2017 12:30 Liðsmenn UConn fagna hundrasta sigrinum í röð og þjálfarinn Geno Auriemma trúir þessu varla. Vísir/AP
Kvennalið University of Connecticut í körfubolta, betur þekkt sem UConn, varð í nótt fyrsta háskólakörfuboltalið sögunnar til að vinna hundrað leiki í röð. Hundraðasti sigurinn kom í hús þegar liðið vann South Carolina 66-55 en South Carolina er talið verið það sjötta besta í bandaríska háskólakörfuboltanum í dag. UConn hafði áður bætt eigið met frá 2008-2010 þegar liðið vann 90 leiki í röð. Ekkert annað karla- eða kvenna-lið hefur unnið svo marga leiki í röð. UConn hefur unnið alla leiki sína frá því 17. nóvember 2014 en síðasta tapið kom fyrir 818 dögum síðan. Það er svo langt síðan að Steph Curry hafði ekki verið kosinn besti leikmaður NBA-deildarinnar en hann hefur nú unnið þau verðlaun tvisvar sinnum á meðan sigurgangan hefur verið í gangi. Umrætt tap á móti Stanford í nóvember 2014 en í raun eina tap UConn-liðsins í síðustu 148 leikjum. Yfirburðir UConn-liðsins hafa verið miklir í mörgum leikjanna en liðið hefur unnið þessa hundrað leiki með 38,4 stigum að meðaltali. Liðið hefur unnið 25 leiki með 50 stigum eða meira. Uconn hefur fagnað tveimur meistaratitlum í sigurgöngunni en undir stjórn þjálfarans Geno Auriemma hefur kvennalið skólans orðið samtals ellefu sinnum bandarískur háskólameistari. Það sem gerir árangurinn í vetur enn merkilegri er að liðið missti þrjá bestu leikmenn sína, Breanna Stewart, Moriah Jefferson og Morgan Tuck, sem voru valdar fyrstar í nýliðavali WNBA-deildarinnar sem sýnir vel hæfileika þeirra. Geno Auriemma var hinsvegar tilbúinn með nýtt lið sem tók upp þráðinn á nýju og hélt sigurgöngunni áfram. Tveir leikmenn hafa spilað alla hundrað leikina en þa eru þær Gabby Williams og Kia Nurse. Gabby Williams var atkvæðamest í leiknum í nótt með 26 stig og 14 fráköst.A look at the amazing numbers to come from Connecticut's 100-game winning streak pic.twitter.com/8BgdziyAd9— ESPN Stats & Info (@ESPNStatsInfo) February 14, 2017 UConn women's basketball: 100th straight win, one of four 100-game winning streaks in NCAA history (all sports) pic.twitter.com/5An1Zf7VoR— ESPN Stats & Info (@ESPNStatsInfo) February 14, 2017
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Enski boltinn Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira