Þessi bíll Peugeot mun standa á pöllunum í Genf þegar bílasýningin þar opnar í næstu viku, en með þessum bíl er Peugeot mestmegnis að sýna framtíðartækni sína, ekki síst hvað varðar sjálfkeyrandi búnað. Bíllinn sjálfur var hannaður með lágan vindstuðul í huga og hann á að kljúfa loftið vel og eyða fyrir vikið litlu.
Þessi bíll er með 300 hestafla tvinnaflrás og enga hliðarspegla þar sem myndavélar innanborðs sjá fyrir útsýninu aftur fyrir bílinn. Hurðir bílsins opnast í sitthvora áttina og enginn póstur þar á milli og aðgengi inn í bílinn frábært. Í ljóskúplum bílsins eru einnig myndavélar sem senda upplýsingar til öryggiskerfis bílsins sem bregðast við aðsteðjandi hættu ef ökumaður gerir það ekki.
Svo til engir takkar eru í mælaborði hans og flestu stjórnað frá 9,7 tommu aðgerðaskjá. Þessi tilhögun mælaborðsins á að marka framtíðarútlit Peugeot bíla. Sæti bílsins eru fjölstillanleg og bjóða uppá æði fjölbreytta sætisskipan. Raddtýrðar skipanir leyfa ökumanni að stjórna bílnum að miklu leiti með rödd ökumanns.

