Ford ætlar að sýna öfluga ST-útgáfu af Fiest bíl sínum, en einnig mun Ford kynna fullt af nýjum öryggisbúnaði í þessum söluhæsta bíl Ford í Evrópu, búnað sem almennt hefur ekki sést í smærri bílum sem Fiesta. Honda mun kynna Civic Type R, kraftaútgáfu Civic bílsins og víst er að hann hefur bætt við sig hestöflum frá fyrri gerð, en sú var nú ekki afllítil með sín 306 hestöfl. Honda ætlar að hefja fjöldaframleiðslu Civic Type R í Bretlandi í sumar.
Hyundai mun sýna Tucson vetnisbíl sem tekur mikið fram fyrri gerð þess bíls og nýtt útlit Tucson á sýningunni gefur til kynna á hverju er á von í næstu kynslóð Tucson. Land Rover mun kynna glænýja bílgerð, Velar, en hann liggur á milli Range Rover Evoque og Range Rover Sport hvað stærð varðar.
Lexus sýnir flaggskipið LS 500h sem áður var búið að kynna á bílasýningunni í Detroit í síðasta mánuði, en fullkomið Multi Stage Hybrid kerfi bílsins leyfir akstur bílsins á allt að 140 km hraða eingöngu á rafmagni. Mercedes Benz verður með 4 gerðir nýlegra AMG-bíla, auk Maybach gerðar G-Class jeppans með stafina G650, en sá bíll kostar um 500.000 evrur. Benz mun einnig sýna nýja pallbílinn sinn í Genf.
Mitsubishi mun kynna til leiks nýjan jeppling með nafnið Eclipse Cross og með því taka aftur í notkun nafnið Eclipse, sem þó var áður á fólksbíl Mitsubishi. Á sýningarpalli Porsche mun standa Panamera Sport Turismo með 680 hestafla aflrás, þeirri öflugustu í Panamera hingað til.
Subaru mun kynna nýjan Crosstrek jeppling sem er byggður á sama undirvagni og ný Impreza. Volkswagen verður með nýjan bíl til sýnis, Arteon, en hann leysir af hólmi CC-bíl Volkswagen, en er örlítið stærri og rúmbetri. Volkswagen ætlar einnig að sýna tilbúna framleiðslugerð hins smáa T-Roc jepplings.
Volvo mun kynna nýjan XC60 jeppling og líklega í Plug-In-Hybrid gerð einnig. Volvo XC60 verður falur almenningi seinna á þessu ári, svo þarna verður endanleg útgáfa bílsins sýnd.





