Útskúfuð úr WNBA þar sem hún var gagnkynhneigð Henry Birgir Gunnarsson skrifar 22. febrúar 2017 14:30 Wiggins í leik í WNBA-deildinni. vísir/getty
Candice Wiggins segir að það hafi verið hræðileg reynsla fyrir sig að spila í WNBA-deildinni þar sem 98 prósent leikmanna séu lesbíur sem líki ekki við gagnkynhneigðar stelpur. Wiggins hætti að leika í deildinni í fyrra en þá var hún aðeins 29 ára. Hún sagðist einfaldlega ekki hafa getað meira. „Ég vildi spila í tvö ár í viðbót en andlega hliðin hefði ekki höndlað það. Það er þunglynd stemning í WNBA. Það er enginn að horfa á okkur og verðmæti okkar ekki hátt. Þetta getur verið erfitt og ég var ekki hrifinn af menningunni í deildinni. Andinn þarna var eitur fyrir mig og ég brotnaði andlega,“ sagði Wiggins sem var valin þriðja í nýliðavalinu á sínum tíma og var í meistaraliði deildarinnar árið 2011. Wiggins segist hafa fengið slæma meðferð hjá meirihluta leikmanna deildarinnar frá því hún kom inn í deildina. Hún segir að það megi að stóru leyti skrifa á að hún sé gagnkynhneigð, ólíkt flestum leikmönnum deildarinnar. „Að ég væri gagnkynhneigð og talaði mikið um það var stórt mál. Ég myndi segja að 98 prósent leikmanna í WNBA séu samkynhneigðar. Það voru ekki sömu reglur fyrir mig og hinar. „Stelpurnar voru stöðugt að reyna að meiða mig viljandi. Ég hef aldrei verið kölluð „bitch“ eins oft um ævina eins og fyrsta árið mitt í deildinni. Mér hefur heldur aldrei verið eins oft kastað niður í parketið. Skilboðin voru skýr: Við viljum að þú vitir að okkur líkar ekki við þig.“ Wiggins spilaði með Tulsa, Los Angeles og New York eftir fimm ár í Minnesota. Hún segir það ekki vera auðvelt að segja sína skoðun á því hvernig hlutirnir gangi fyrir sig í deildinni. „Ég er að reyna að passa mig og vil ekki eyðileggja drauma einhverra sem vilja komast í deildina. Helst myndi ég vilja að allt væri frábært þar en ég verð að vera heiðarleg með mína upplifun.“ Forráðamenn WNBA-deildarinnar hafa ekki viljað tjá sig um málið.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira