Barcelona áfram eftir stórkostlega endurkomu | Sjáðu mörkin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. mars 2017 22:00
Barcelona er komið áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir einhverja ótrúlegustu endurkomu síðari ára. Barcelona tapaði fyrri leiknum gegn Paris Saint-Germain 4-0 og þurfti því að skora fimm mörk til að fara áfram, að því gefnu að PSG myndi ekki skora. Frönsku meistararnir skoruðu og þegar tvær mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma var staðan 3-1 og Barcelona þurfti þrjú mörk til að komast áfram. Og það gerðist. Neymar kom Barcelona í 4-1 með frábæru marki beint úr aukaspyrnu. Þremur mínútum síðar sótti Luis Suárez ódýra vítaspyrnu sem Neymar skoraði úr. Það var svo varamaðurinn Sergi Roberto sem skoraði sjötta markið þegar fimm mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Lokatölur 6-1 og Börsungar fara áfram, 6-5 samanlagt. Staðan var 2-0 í hálfleik. Suárez kom Barcelona yfir strax á 3. mínútu og fimm mínútum fyrir hálfleik skoraði Layvin Kurzawa sjálfsmark. Lionel Messi kom Barcelona í 3-0 á 50. mínútu með marki úr vítaspyrnu. Tólf mínútum síðar skoraði Edinson Cavani og Börsungum virtust allar bjargir bannaðar. En síðan kom endurkoman ótrúlega og Barcelona er því komið áfram í 8-liða úrslit.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Körfubolti Mætti til leiks berfættur og ber að ofan í snjókomunni Sport „Í dag er dagurinn sem þú fæddist, í dag er dagurinn sem þú munt deyja“ Enski boltinn Þórir í skýjunum: „Sit með lítið tár í augnkróknum“ Handbolti Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron Körfubolti „Sé ekkert annað en að dýrasti leikmaður deildarinnar verði áfram á bekknum“ Enski boltinn Fyrirliði Newcastle eftir tapið fyrir Sunderland: „Þetta er svo vandræðalegt“ Enski boltinn „Finnst þér ekki eins og hann sé þjakaður af pressu yfir því hvað hann sé lélegur?“ Enski boltinn Maresca hafi tekið blaðsíðu úr bók Salah og gert sér óleik Enski boltinn Ballið búið hjá Chiefs og Mahomes meiddist á hné Sport Fleiri fréttir Vildi ekki skýra ummælin um verstu 48 klukkutímana frekar Rodgers á leið til Sádi-Arabíu Maresca hafi tekið blaðsíðu úr bók Salah og gert sér óleik Guardiola gagnrýndi Foden þrátt fyrir markið „Finnst þér ekki eins og hann sé þjakaður af pressu yfir því hvað hann sé lélegur?“ Fyrirliði Newcastle eftir tapið fyrir Sunderland: „Þetta er svo vandræðalegt“ Sjáðu klaufalegt sjálfsmark Woltemade í grannaslagnum og öll hin úr enska Amorim verður ánægður ef Mainoo ræðir við hann um lán „Sé ekkert annað en að dýrasti leikmaður deildarinnar verði áfram á bekknum“ „Í dag er dagurinn sem þú fæddist, í dag er dagurinn sem þú munt deyja“ Keyptu nýjan leikvang fyrir Glódísi og Bayern-konurnar Upphitun japanska fótboltamannsins er algjört augnakonfekt Brasilísk samvinna færði Real lífsnauðsynlegan sigur Henderson heiðraði minningu Jota eftir fyrsta markið sitt í fjögur ár Brjálaðist og sendi dómarann á sjúkrahús Emelía valin efnilegust hjá danska toppliðinu: „Einstök gleðisprengja“ Mikael Egill og félögum tókst ekki að stoppa toppliðið Calvert-Lewin jafnaði fyrir Leeds í lokin Hákon fann skotskóna í fyrsta sinn síðan í október „Gott fyrir svæðið, félagið og stuðningsmennina“ Sunderland vann nágrannaslaginn fyrir norðan Glódís fékk hvíld og leiðir liðið bráðum út á nýjan heimavöll Danir og Svíar eiga í deilum um kornunga drengi Haaland með tvennu í öruggum útisigri City Sangaré og Hudson-Odoi hrelltu Tottenham Eigendur Juventus vildu ekki selja og nú þurfa leikmenn að sanna sig Þjálfari Orra Steins látinn fara Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö David Silva: Ég var sá fyrsti sem Beckham vildi fá til Inter Miami Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag Sjá meira