Blind rekinn eftir tapið í Búlgaríu Kristinn Páll Teitsson skrifar 26. mars 2017 19:35
Hollenska knattspyrnusambandið staðfesti rétt í þessu að ákveðið hefði verið að segja upp samningi Danny Blind sem þjálfara hollenska landsliðsins í knattspyrnu en undir hans stjórn er liðið í tómu tjóni í undankeppni HM 2018. Það lítur allt út fyrir að hollenska liðið muni missa af öðru stórmótinu í röð en liðið er í allskonar vandræðum í A-riðli undankeppninnar fyrir HM í Rússlandi næsta sumar en Holland er sex stigum frá Frakklandi þegar undankeppnin er hálfnuð. Einu tveir sigrar liðsins komu gegn Hvíta-Rússlandi og Lúxemborg en Holland náði aðeins jafntefli gegn Svíþjóð og var tap gegn Búlgaríu í gær á endanum banabiti Blind. Mistókst honum eins og frægt er að rétta hollensku skútuna af þegar hann tók við hollenska landsliðinu af Guus Hiddink fyrir leikinn gegn Íslandi í Amsterdam árið 2015. Sat hollenska landsliðið eftir í þeirri undankeppni aðeins ári eftir að hafa unnið til bronsverðlauna á Heimsmeistaramótinu í Brasilíu.
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Enski boltinn Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Fótbolti Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Handbolti Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Enski boltinn Spilar áfram með Messi í Miami Fótbolti Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur Íslenski boltinn „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ Körfubolti Ungstirnið skallaði meistarana áfram Enski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Körfubolti Fleiri fréttir Spilar áfram með Messi í Miami Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Vålerenga úr leik eftir tap fyrir stöllum Glódísar Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Varði fjögur víti til að tryggja PSG titilinn Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur Fjórir frá hjá Blikum á morgun Benítez lét Sverri byrja og flaug áfram í bikarnum KSÍ missti af meira en milljarði króna City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Nígeríumenn halda HM-draumnum á lífi með kvörtun til FIFA Man United ósátt við Marokkó og FIFA „Fyrir mér er Flamengo stærra en Real Madrid“ Átta þúsund krónur fyrir miða á úrslitaleik HM í stað 529 þúsund Sú besta í heimi komst ekki á blað hjá íslenska landsliðsþjálfaranum Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Félag Arnórs Ingva og Ísaks seldi þjálfara sinn Öðruvísi lið en áður hafa sóst í Frey: „Vita hvar ég stend“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Milljarðs evra munur á liðunum: Börsungar lentu í brasi gegn þriðju deildar liði Garnacho skaut Chelsea áfram í undanúrslit Sjáðu flottasta mark í heimi árið 2025 Bonmatí og Dembele best í heimi Vísa á bug fullyrðingum Bruno sem hafa valdið fjaðrafoki Rodgers tekinn til starfa í Sádi-Arabíu Gestgjafar HM bjóða Íslandi heim í leik Hlaut 21 árs dóm fyrir að aka inn í skrúðgönguna í Liverpool Mbappé vann PSG og fær níu milljarða Sjá meira