Það þótti við hæfi að fyrsti sigur Sergio Garcia á risamóti á ferlinum kæmi að degi sem hefði orðið sextugasti afmælisdagur landa hans Seve Ballesteros ef Ballesteros hefði lifað.
Seve Ballesteros vann Mastersmótið 1980 og 1983 en hann lést árið 2011.
„Ég er búinn að bíða svo lengi eftir þessu og ég er svo ánægður,“ sagði hinn 37 ára gamli Sergio Garcia eftir sigurinn.
„Að ná þessu á sextugs afmælisdegi Seve og komast í hóp með honum og [Jose Maria] Olazabal, fyrirmyndanna minna í golfinu, er eitthvað alveg stórkostlegt,“ sagði Sergio Garcia.
„Jose sendi mér SMS á miðvikudaginn þar sem hann sagði mér hversu mikla trú hann hefði á mér og að ég þyrfti að trúa á sjálfan mig, halda ró minni og ekki láta hluti hafa áhrif á mig eins og hefur gerst oft áður,“ sagði Garcia sem hafði oft verið í toppbaráttunni á risamóti án þess að ná að fagna sigri.
„Ég hafði alltaf á tilfinningunni að þessi völlur myndi gefa mér einn risatitil. Sú tilfinning breyttist hinsvegar eftir því sem árin liðu og mér fór að líða óþægilega á vellinum. Ég var því búinn að sætta mig við að þessi titil kæmi aldrei,“ sagði Garcia en um helgina gekk allt upp.
„Ég vissi að ég var að spila vel. Ég hef líklega aldrei verið svona rólegur áður á risamóti. Ég hélt jákvæðinni þrátt fyrir nokkra skolla því ég vissi að gæti náð fuglum á komandi holum. Ég er svo ánægður,“ sagði Sergio Garcia sem er ellefti á heimslistanum en kemst væntanlega upp í tíunda sætið með þessum sigri.
Það fór vel á með Sergio Garcia og Justin Rose þrátt fyrir harða baráttu og að mikið var undir.
„Við erum góðir vinir og berum mikla virðingu fyrir hvorum öðrum. Við vorum að hvetja hvorn annan áfram. Við vildum að vinna hinn en ekki að hinn myndi tapa þessu,“ sagði Garcia.
Sergio García breaks through for his 1st win in a major. His previous best finish was 2nd (4 times). #themasters pic.twitter.com/ShHa3PAbZg
— ESPN Stats & Info (@ESPNStatsInfo) April 9, 2017
3 Spaniards have held a 54-hole lead in #themasters. All 3 went on to win. pic.twitter.com/UP9o968Kke
— ESPN Stats & Info (@ESPNStatsInfo) April 9, 2017