Þetta sýna gögn sem fréttastofa RÚV og Kjarninn hafa undir höndum og fjallað er um á RUV.is og á Kjarnanum. Í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis vegna sölunnar á Búnaðarbanka, sem skilað var í mars, kom fram að þýski bankinn Hauck & Aufhäuser var aldrei í reynd fjárfestir í Búnaðarbankanum þegar 45,8 prósent hlutur ríkisins í honum var seldur í janúar 2003, ólíkt því sem haldið var fram allt frá upphafi.
Þar kom einnig fram að raunverulegur eigandi hlutarins sem bankinn var sagður eiga hafi verið aflandsfélagið Welling & Partners, skráð á Tortóla á Bresku Jómfrúaeyjum. Hlutabréfin sem þýski bankinn keypti að nafninu til voru síðar seld með milljarða króna hagnaði. Á árinu 2006 var þessi hagnaður greiddur út, eða um 100 milljónir dollara. Fléttan fékk nafnið „Puffin“ og hefur verið kölluð „Lundafléttan“.

Félagið virkt eftir hrun
Í gögnunum sem Kjarninn og fréttastofa RÚV hafa undir höndunum kemur fram að félagið virðist enn vera til. Þar sé að finna skjal sem sýni virkni félagsins þann 8. desember 2009. Gögnin sýna að svissneski bankinn Julius Bäer hafi tekið tekið veð í öllum eignum Dekhill Advisors en ekki kemur fram hvers vegna. Þá sé í gögnunum einnig að finna skráningarskírteini fyrir Dekhill Advisors úr fyrirtækjaskrá á Bresku-Jómfrúaeyjum. Það skírteini er frá haustinu 2016.Í frétt RÚV segir að í ljósi þess að félagið hafi verið í viðskiptum við Julius Bäer-bankann vegna alþjóðlegra reglna um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka sé raunverulegur eigandi félagsins á skrá hjá bankanum.
Rannsóknarnefndinni tókst ekki að sýna fram á það með óyggjandi hætti hver væri raunverulegur eigandi félagsins en Kjartan Bjarni Björgvinsson, formaður rannsóknarnefndarinnar, að það væru aðilar á Íslandi sem hefðu vitneskju um það. Sagði hann að stærsta spurningin sem eftir stæði eftir rannsóknarvinnu nefndarinnar væri hverjir væru raunverulegir eigendur félagsins.
„Í þessari skýrslu sem við skiluðum í dag stendur eftir ein stór spurning. Hún er sú hverjir áttu aflandsfélagið Dekhill Advisors Ltd sem fær til sín rúmlega 46 milljón bandaríkjadala af þessum fjárhagslega ávinningi af viðskiptunum?,“ sagði Kjartan í viðtali við kvöldfréttir Stöðvar 2.Ólafur Ólafsson, sem borinn var þungur sökum í skýrslunni, kemur fyrir Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis á morgun. Þar mun hann útskýra mál sitt en hann neitar því staðfastlega að hafa staðið í blekkingum við íslenska ríkið við kaupin á bankanum árið 2003.