Peter Öqvist gerði Luleå að Svíþjóðarmeisturum í gær Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. maí 2017 10:30 Peter Öqvist fagnar með sínum hætti í gær. Mynd/BC Luleå
Peter Öqvist, fyrrum þjálfari íslenska landsliðsins í körfubolta, er að gera mjög góða hluti með lið BC Luleå í sænska körfuboltanum. BC Luleå varð í gær sænskur meistari í fyrsta sinn í heilan áratug þegar liðið vann sannfærandi sigur í fimmta leik sínum á móti Södertälje Kings í úrslitaeinvíginu. Luleå vann síðast sænska titilinn árið 2007. Þetta er samt ekki í fyrsta sinn sem Peter Öqvist gerir lið að sænskum meisturum en hann vann sænska meistaratitilin líka vorið 2011 og þá með Sundsvall Dragons. Aðaldrekarnir í því liði voru þeir Hlynur Bæringsson og Jakob Sigurðarson. Öqvist gerði Drekana líka að meisturum 2009 og hefur því unnið sænska titilinn í þrígang sem þjálfari. Í framhaldinu tók Peter Öqvist síðan við íslenska landsliðinu og margir vilja þakka honum að hluta til fyrir velgengni íslenska landsliðins á síðustu árum en hann breytti bæði leikstíl og hugarfari hópsins. Craig Pedersen tók síðan við af Öqvist og Kanadamaðurinn hefur nú komið íslenska liðinu á tvö Evrópumóti í röð. Peter Öqvist hætti með íslenska landsliðið eftir tveggja ára starf og vildi frekar vera félagsþjálfari í heimalandi sínu. Hann hefur verið að byggja upp lið BC Luleå síðustu ár. BC Luleå vann þrjá fyrstu leiki lokaúrslitanna í ár og þetta var því annar leikurinn í röð þar sem liðið gat tryggt sér titilinn. Liðið tapaði með sex stigum í leiknum á undan þar sem liðið fékk á sig 96 stig. Þeir sem þekkja Peter Öqvist vita að sá varnarleikur var ekki boðlegur enda hélt BC Luleå liði Södertälje Kings í aðeins 65 stigum og tryggði sér sannfærandi sigur. BC Luleå vann alls 11 af 13 úrslitaleikjum sínum í úrslitakeppninni í ár.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira