Steinunn Björnsdóttir, línumaður Íslandsmeistara Fram, og Theodór Sigurbjörnsson, hornamaður ÍBV, voru í kvöld valin bestu leikmenn ársins í Olís-deildum karla og kvenna í handbolta en verðlaunin voru afhent á Lokahófi HSÍ.
Viktor Gísli Hallgrímsson, markvörður úr Fram og Sandra Erlingsdóttir, örvhent skytta úr ÍBV, voru valin efnilegustu leikmenn deildanna tveggja.
Þjálfarar Fram voru valdir bestu þjálfararnir. Stefán Arnarson gerði kvennalið Fram að Íslandsmeisturum og Guðmundur Helgi Pálsson kom karlaliði Fram óvænt alla leið í undanúrslit úrslitakeppninnar.
Steinunn Björnsdóttir vann annars fullt af verðlaunum í kvöld en hún var líka valin besti varnarmaður deildarinnar og hlaut Sigríðarbikarinn sem mikilvægasti leikmaðurinn að mati þjálfara deildarinnar.
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir hjá Selfossi var kosin besti sóknarmaður Olís-deildar kvenna og Framarinn Guðrún Ósk Maríasdóttir var valin besti markvörður deildarinnar.
Valsmaðurinn Orri Freyr Gíslason fékk Valdimarsbikarinn sem mikilvægasti leikmaðurinn að mati þjálfara deildarinnar. Theodór Sigurbjörnsson var líka valinn besti sóknarmaður Olís-deildar karla en FH-ingurinn Ágúst Birgisson var kosinn besti varnamaðurinn og Stjörnumaðurinn Sveinbjörn Pétursson er besti markvörður tímabilsins.
Anton Gylfi Pálsson var búin að vera kosinn þjálfari ársins tíu ár í röð, fyrst með Hlyni Leifssyni og svo með Jónasi Elíassyni. Sigurganga Antons er á enda því þeir Heimir Örn Árnason og Sigurður Hjörtur Þrastarson voru valdir besta dómaraparið í vetur.
Hér fyrir neðan má sjá öll verðlaun kvöldsins:
1. Háttvísiverðlaun HDSÍ kvenna 2017
Laufey Ásta Guðmundsdóttir – Grótta
2. Háttvísiverðlaun HDSÍ karla 2017
Andri Þór Helgason - Fram
3. Unglingabikar HSÍ 2017
HK
4. Markahæsti leikmaður 1.deildar kvenna 2017
Alina Molkova - Víkingur með 238 mörk
5. Markahæsti leikmaður 1.deildar karla 2017
Jón Kristinn Björgvinsson – ÍR með 158 mörk
6. Markahæsti leikmaður Olís deildar kvenna 2017
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir – Selfoss með 174 mörk
7. Markahæsti leikmaður Olís deildar karla 2017
Theodór Sigurbjörnsson - ÍBV með 233 mörk
8. Besti varnarmaður 1.deildar kvenna 2017
Berglind Þorsteinsdóttir - HK
9. Besti varnarmaður 1.deildar karla 2017
Sveinn Þorgeirsson - Fjölnir
10. Besti varnarmaður Olís deildar kvenna 2017
Steinunn Björnsdóttir - Fram
11. Besti varnarmaður Olís deildar karla 2017
Ágúst Birgisson - FH
12. Besti sóknarmaður 1.deildar kvenna 2017
Alina Molkova - Víkingur
13. Besti sóknarmaður 1.deildar karla 2017
Jón Kristinn Björgvinsson - ÍR
14. Besti sóknarmaður Olís deildar kvenna 2017
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir - Selfoss
15. Besti sóknarmaður Olís deildar karla 2017
Theodór Sigurbjörnsson - ÍBV
16. Besti markmaður 1.deildar kvenna 2017
Margrét Ýr Björnsdóttir - HK
17. Besti markmaður 1.deildar karla 2017
Einar Baldvin Baldvinsson - Víkingur
18. Besti markmaður Olís deildar kvenna 2017
Guðrún Ósk Maríasdóttir - Fram
19. Besti markmaður Olís deildar karla 2017
Sveinbjörn Pétursson - Stjarnan
20. Besta dómaraparið 2017
Heimir Örn Árnason – Sigurður Hjörtur Þrastarson
21. Sigríðarbikarinn 2017
Steinunn Björnsdóttir - Fram
22. Valdimarsbikarinn 2017
Orri Freyr Gíslason - Valur
23. Besti Þjálfari í 1.deild kvenna 2017
Jónatan Þór Magnússon – KA/Þór
24. Besti Þjálfari í 1.deild karla 2017
Arnar Gunnarsson – Fjölnir
25. Besti þjálfari í Olís deildar kvenna 2017
Stefán Arnarson - Fram
26. Besti Þjálfari í Olís deildar karla 2017
Guðmundur Helgi Pálsson - Fram
27. Efnilegasti leikmaður 1.deildar kvenna 2017
Andrea Jacobsen - Fjölnir
28. Efnilegasti leikmaður 1.deildar karla 2017
Sveinn Jóhannsson - Fjölnir
29. Efnilegasti leikmaður Olís deildar kvenna 2017
Sandra Erlingsdóttir - ÍBV
30. Efnilegasti leikmaður Olís deildar karla 2017
Viktor Gísli Hallgrímsson - Fram
31. Leikmaður ársins í 1.deild kvenna 2017
Martha Hermannsdóttir – KA/Þór
32. Leikmaður ársins í 1.deild karla 2017
Jón Kristinn Björgvinsson - ÍR
33. Besti leikmaður í Olís deildar kvenna 2017
Steinunn Björnsdóttir - Fram
34. Besti leikmaður í Olís deildar karla 2017
Theodór Sigurbjörnsson - ÍBV
Steinunn og Theodór kosin leikmenn ársins í handboltanum
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
