Ómar hafði áður meðal annars starfað í eigin viðskiptum hjá Arion banka og á árunum 2009 til 2011 var hann í fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka og H.F. Verðbréfa.
Árin 2007 og 2008 starfaði hann hjá Straumi fjárfestingabanka í eigin viðskiptum við fjárfestingar í innlendum sem og erlendum hlutabréfum ásamt því að halda utanum viðskiptavakt á innlendum hlutabréfum.

Hörður Steinar réð sig til Landsbankans á meðan Matei, sem hafði aðeins starfað hjá Íslandsbanka í um þrjá mánuði, fór til Fossa markaða þar sem hann á að fylla skarð Hannesar Árdals, sem lét af störfum hjá Fossum í apríl, í miðlun skuldabréfa.
Uppfært klukkan 10:41
Íslandsbanki hefur sent frá sér tilkynningu í kjölfar fréttar Markaðarins. Þar kemur meðal annars fram að auk Ómars hafi Elmar Árnason tekið til starfa í verðbréfamiðlun bankans. Tilkynninguna í heild má sjá hér að neðan.
Ómar Özcan og Elmar Árnason hafa verið ráðnir í verðbréfamiðlun Íslandsbanka. Verðbréfamiðlun er hluti af nýju sviði bankans, Fyrirtæki og fjárfestar, sem þjónar fjárfestum og stórum fyrirtækjum.
Ómar er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík með meistaragráðu í Fjárfestingarstjórnun. Hann hefur undanfarið ár starfað við verðbréfamiðlun hjá Íslenskum verðbréfum og áður hjá Arion banka.
Elmar Árnason er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og löggiltur verbréfamiðlari. Hann hefur starfað undanfarin tíu ár hjá VÍB, eignastýringu Íslandsbanka sem verðbréfaráðgjafi og viðskiptastjóri hjá Einkabankaþjónustu.
Vilhelm Már Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Fyrirtækja og fjárfesta:
„Það er mikill styrkur fyrir okkur að fá Elmar og Ómar til liðs við verðbréfamiðlun bankans en báðir hafa mikla reynslu á fjármálamarkaði. Undanfarin ár hefur íslenskt efnahagslíf verið að glæðast og við sjáum fjölmörg tækifæri á mörkuðum. Nýtt svið bankans, Fyrirtæki og fjárfestar, gefur okkur enn fleiri sóknarfæri og möguleika á að veita viðskiptavinum enn betri þjónustu.“