Veiði

Nýjar vikutölur úr laxveiðiánum

Karl Lúðvíksson skrifar
Það styttist í að laxveiðitímabilið verði hálfnað í þeim ám sem opnuðu fyrstar og við fyrstu sýn sýnist þetta sumar verða um meðallag.

Aðeins ein á er komin yfir 1000 laxa múrinn og það er Þverá og Kjarrá með 1001 lax á sínar 14 stangir.  13. júlí í fyrra voru komnir 1003 laxar en það sumar endaði hún í 1469 löxum en talan þá hefði getað verið hærri eins og í fleiri ám á vesturlandi en lítið vatn og stanslausir sólardagar gerðu veiðimönnum erfitt fyrir.  Langtímaspáin núna spáir engri hitabylgju en aftur á móti frekar miklum breytingum í veðri og góðum slurk af rigningu sem er nákvæmlega það sem heldur veiðinni yfirleitt jafnri á tímabilinu.

Fréttir af vesturlandinu eru góðar í einhverjum ánum en veiðimenn og leiðsögumenn við Þverá/Kjarrá og Langá segja mikið af laxi í þeim báðum og í kringum stórstrauminn 10.júlí hafi komið stórar göngur sem fari hratt upp árnar.  Laxveiðiárnar sem koma næstar á eftir Þver(Kjarrá er Norðurá með 794 laxa, Miðfjarðará með 749 laxa en hún var með 4338 laxa í fyrra.  Ytri Rangá með 570 laxa og Langá með 532 laxa.  Ef við skoðum tvær árnar úr þessum fimm sem voru með þeim aflahæstu í fyrra þá vantar aðeins upp á veiðina.  Ekki skilja það sem svo að sé einhver mikil niðursveifla, það er ekkert sem bendir til þess, en á sama tíma 2016 voru komnir 1077 laxar úr Miðfjarðará og 1720 laxar úr Ytri Rangá en það verður að skoða þá tölu með því til hliðsjónar að árið í fyrra var eitt það besta í Ytri Rangá.  Sumarið 2015 sem var gott ár í ánni þegar 4909 laxar veiddust var veiðin ekki komin i nema 502 laxa svo það sést að stærstu göngurnar í Rangárnar eru bara ekki mættar og mæta yfirleitt um og eftir miðjan júlí.  Listann yfir aflahæstu árnar má finna á www.angling.is





 

 






×