Söngkonan geiflaði sig og gretti Jónas Sen skrifar 13. júlí 2017 10:45 Guðrún Jóhanna var listrænn stjórnandi tónleikanna og kom líka fram í nokkrum atriðum. Vísir/Anton Brink
Tónlist Söngtónleikar Tónlist eftir Jórunni Viðar, Leonard Bernstein, Claudio Monteverdi, Leo Delibes og fleiri. Flytjendur: Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Dísella Lárusdóttir. Guja Sandholt, Francisco Javier Jáuregui, Hrönn Þráinsdóttir og börn undir stjórn Þórdísar H. Kristjánsdóttur og Hildar G. Þórhallsdóttur. Hafnarborg Sunnudaginn 9. júlí Ein fyndnasta aría óperubókmenntanna er Glitter and be Gay eftir Leonard Bernstein. Þar er gert grín að nokkrum þekktum aríum, sérstaklega þeirri sem kennd er við næturdrottninguna úr Töfraflautunni eftir Mozart. Arían er gríðarlega erfið og flokkast undir svokallaðan koloratúr, sem einkennist af hröðum tónahlaupum, trillum og stökkum upp eða niður tónstigann. Á lokatónleikum Sönghátíðar í Hafnarborg á sunnudaginn söng Dísella Lárusdóttir m.a. þessa aríu og gerði það prýðilega. Einn og einn tónn hefði að vísu mátt vera nákvæmari, en í heild var arían kröftug og glæsileg, þétt og hnitmiðuð. Tónlistin krefst ýktra leikrænna tilburða, og Dísella náði þeim með afburðum vel, geiflaði sig og gretti, sem skilaði sér í mikilli kátínu tónleikagesta. Önnur söngkona, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran, var listrænn stjórnandi hátíðarinnar. Þetta var í fyrsta sinn sem hátíðin var haldin. Áður hefur Guðrún Jóhanna stjórnað Kammerhátíðinni á Kirkjubæjarklaustri og gert það af röggsemi og fagmennsku. Hátíðin nú samanstóð af tónleikum þekktra söngvara, en einnig fóru fram söngnámskeið fyrir leikmenn og líka fyrir börn. Námskeiðin fyrir börnin voru haldin af Þórdísi Heiðu Kristjánsdóttur og Hildi Guðnýju Guðmundsdóttur og var afraksturinn sýndur á tónleikunum. Börnin sungu Óðinn til gleðinnar úr níundu sinfóníu Beethovens auk annarra laga. Þau munu upphaflega hafa haldið að Óðurinn væri þjóðsöngur Íslendinga. Sá misskilningur varð vegna þess að alþekkt stefið var leikið aftur og aftur í tengslum við EM í sjónvarpinu í fyrra. Söngur barnanna var bjartur og fallegur, þrunginn lífi og einlægni. Guðrún Jóhanna kom fram í nokkrum atriðum á tónleikunum. Hún söng fyrst nokkur íslensk þjóðlög, og gerði það af viðeigandi tilfinningu. Önnur íslensk lög fylgdu í kjölfarið, en útlensk tónlist eftir hlé var enn öflugri í meðförum hennar, bæði Pur ti miro úr Krýningu Poppeu eftir Monteverdi og Blómadúettinn frægi úr Lakmé eftir Delibes. Þar naut falleg röddin sín til fulls. Dísella söng með Guðrúnu Jóhönnu síðarnefnda dúettinn en Guja Sandholt þann fyrri. Guja söng líka af aðdáunarverðum krafti og tæknilegu öryggi nokkur lög eftir Jórunni Viðar. Síðasta lagið, Vökuró, sem Björk Guðmundsdóttir gerði heimsfrægt, var einkar hrífandi í meðförum Guju. Það var innilegt, brothætt og angurvært; yfir því var draumkennd, nostalgísk stemning sem var afar sannfærandi. Hrönn Þráinsdóttir lék skýrt og af yfirvegun á píanóið. Eiginmaður Guðrúnar Jóhönnu, Francisco Javier Jáuregui, spilaði líka ágætlega á gítar, m.a. í íslensku þjóðlögunum. Þau voru einmitt útsett af honum af miklu næmi og smekkvísi. Þetta var skemmtileg stund.Niðurstaða: Glæsilegir tónleikar með mögnuðum söng og flottri tónlist.
Tónlistargagnrýni Mest lesið „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ Lífið Stjörnulífið: „Grín sem gekk allt of langt“ Lífið Bjössi og Dísa í carnival stemningu í miðbænum Lífið Samdi CIA lag Scorpions, Wind of Change, til að fella Sovétríkin? Lífið Flottasti garður landsins - taktu þátt! Lífið samstarf Fóru hringinn um Grænlandsjökul á baki vinddreka: Brotin rifbein, kynngimagnað sjónarspil og óþægilegt návígi við ísbjörn Ferðalög Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Lífið Varð mjög hræddur en fann huggun í húmornum Lífið Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Lífið Var orðið að spurningu um líf og dauða Lífið Fleiri fréttir Mömmustrákur skýtur uppvakningum ref fyrir rass Norah Jones: Tíminn stóð í stað þar til ljóskastarinn vakti mann Neistalaus trekantur leiðinlega fólksins Er Stalín listgagnrýnandi í Hörpu núna? Wardruna í vanda – þegar dulúðin náði ekki flugi Tom Cruise hrasar á síðasta snúning Messan sem var ekki tímamótaverk – en mig langaði samt til að gráta Sjá meira
Fóru hringinn um Grænlandsjökul á baki vinddreka: Brotin rifbein, kynngimagnað sjónarspil og óþægilegt návígi við ísbjörn Ferðalög
Fóru hringinn um Grænlandsjökul á baki vinddreka: Brotin rifbein, kynngimagnað sjónarspil og óþægilegt návígi við ísbjörn Ferðalög