Mikil gæði í DJI-drónum
Dronefly hefur til sölu DJI dróna sem eru afar notendavænir. „Þeir tengjast allt að 21 gervitungli og stinga þannig ekki af undan vindi. Þeir halda sér á punktinum ef fjarstýringu er sleppt og eru þar af leiðandi mjög stöðugir. Þeir koma sjálfir heim á heimapunkt og geta einnig elt þig. Þeir bjóða upp á marga fleiri eiginleika sem hjálpa þér að ná þínu fullkomna skoti,“ segir Arnar. Hann bætir við að DJI drónarnir hafi svokallað gáfað batterí. „Dróninn lætur vita ef hann er að verða batteríslaus og passar að láta vita í tíma svo að nóg sé eftir á batteríinu til að snúa við og fljúga heim. Þá byrjar hann að lækka flugið ef hættulega lítil hleðsla er á batteríinu.“

Stór hluti af starfsemi Dronefly er útleiga á drónum sem stjórnað er af starfsmönnum fyrirtækisins en þeir eru með um fimm ára reynslu í að fljúga drónum. „Við erum með dróna sem henta í hvaða verkefni sem er, allt frá litlum auglýsingum upp í þær stærstu. Við erum einnig að leigja út „Ronin Gimbal“ sem er stöðugleikakerfi fyrir myndavélar en það hentar bæði fyrir DSRL vélar upp í nánast fullvaxnar kvikmyndavélar.“

Hjá Dronefly er rekin viðgerðarþjónusta sem sérhæfir sig í viðgerðum á drónum. Hátækniverkfræðingur með sérmenntun í ómönnuðum loftförum frá Bretlandi starfar þar við viðgerðir. „Við gerum við allar tegundir flygilda, og eigum flesta varahluti til á lager fyrir DJI dróna. Við græjum þá á einum eða tveimur dögum ef varahluturinn er til á lager hjá okkur.“
Dronefly mun einnig bjóða upp á námskeið fyrir byrjendur og lengra komna. „Þar förum við yfir það helsta sem þarf að vita varðandi reglur, umhirðu og viðhald á drónanum og svo auðvitað hvernig á að fljúga í fyrsta skipti og hvernig skal bregðast við og koma í veg fyrir óhöpp,“ segir Arnar.
Dronefly, Krókhálsi 6, s. 566-6666. Nánari upplýsingar má nálgast á hér.
