Klopp: Allt í lagi úrslit Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. ágúst 2017 21:21 Jürgen Klopp þakkar fyrir leikinn í kvöld. Vísir/Getty
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, var ekkert alltof ánægður eftir 2-1 sigur Liverpool á Hoffenheim í Þýskalandi í kvöld en þetta var fyrri leikur liðanna í umspili um laust sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í vetur. Liverpool hafði heppnina með sér í leiknum því Hoffenheim klúðraði víti í upphafi leiks og fleiri góðum færum. Þýska liðið á hinsvegar ennþá von í seinni leiknum í Englandi eftir að liðið minnkaði muninn undir lokin. „Hoffenheim lagði þennan leik upp á ákveðinn hátt. Við tókum of mikla áhættu á vængjunum og það skapaði þó nokkra hættu í fyrri hálfleiknum,“ sagði Jürgen Klopp í viðtali við BT Sport eftir leik en Liverpool liðið fékk líka færi til að skora fleiri mörk. „Eins og alltaf þegar við spilum fótbolta þá fundum við svæði til að sækja í og sköpuðum góð færi,“ sagði Klopp. „Þetta eru svona allt í lagi úrslit. Nú er fyrri hálfleikurinn að baki og ég hefði alltaf sætt mig við sigur fyrir leikinn,“ sagði Klopp. „Við þurfum á Anfield að halda. Það er núna hægt að fara að hlakka til Evrópukvölds á Anfield í næstu viku,“ sagði Klopp en hvað með mikla mótstöðu frá Hoffenheim í kvöld? „Þetta kom aðeins þeim á óvart sem þekkja ekki Hoffenheim,“ sagði Klopp.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið Íslenskt stuðningsfólk varar við svindli í höllinni Handbolti Stærsta blað Slóveníu: Sársaukafull kennslustund Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Slóveníu: Viktor! Gísli! Hallgrímsson! Handbolti Solskjær: Lét mig vinna launalaust Fótbolti Ósáttur afi Sölva skildi ekki hvernig Arnar gat rekið hann í beinni Íslenski boltinn Óvænt rekinn með símtali rétt áður en Elísabet tók við Fótbolti Ísland byrjar á Egyptum og spilar tvo kvöldleiki Handbolti Samfélagsmiðlar yfir sigrinum á Slóveníu: „Viktor Gísli bestur í heimi eða?“ Handbolti Skýrsla Vals: Viktor og virkisveggurinn Handbolti „Hann á eftir að verða betri, áttiði ykkur á því“ Handbolti Fleiri fréttir Spilar ekki á meðan glugginn er opinn Petit baðst afsökunar á að „drepa“ Pat Rice „Ég myndi deyja fyrir Liverpool“ Englandsmeistararnir festa kaup á Khusanov Varnarmennirnir björguðu Chelsea Fowler með sína kenningu um þá samningslausu hjá Liverpool Rotta hljóp um á grasinu á Old Trafford í miðjum leik Áttundi sigur Forest í síðustu níu leikjum Yfirlýsing frá City með stórsigri Onana með skelfileg mistök þegar United tapaði enn og aftur fyrir Brighton Draumaendurkoma hjá Moyes á Goodison Park Fyrrverandi landsliðsmaður Englands mætir KSI í boxbardaga Segir Liverpool besta lið heims Antony á leið til Betis Ollie Watkins gerði Arsenal skráveifu Núnez með tvö mörk í uppbótartíma Kluivert með þrennu í fyrsta leik dagsins Haaland sagður fá yfir tólf milljónir í laun á dag næsta áratuginn Samingur Haaland slæmar fréttir fyrir Alan Shearer Denis Law látinn Fer Garnacho frá Manchester United? Chelsea hefur áhuga City búið að finna sinn Salah? Hetja United: „Ein besta vika lífs míns“ Haaland skrifaði undir níu og hálfs árs samning við City Diallo bjargaði málunum fyrir United á Old Trafford Foden: Við erum ekki heimskir, titillinn er farinn Arsenal kom til baka og vann slaginn um Norður-London Isak áfram í stuði og Moyes tapaði fyrsta leik Amorim: Southampton mun kenna mér meira en Liverpool og Arsenal Klopp: Ég held partý ef Man City missir titlana Sjá meira