Myndir frá sigrinum frábæra á Úkraínu

Gylfi Þór Sigurðsson skoraði bæði mörk Íslands í seinni hálfleik. Hann hefur nú skorað 17 mörk fyrir íslenska landsliðið en 15 þeirra hafa komið í keppnisleikjum.
Þegar tvær umferðir eru eftir af riðlakeppninni eiga fjögur lið (Króatía, Ísland, Tyrkland og Úkraína) möguleika á að tryggja sér 1. sætið og þar með farseðilinn til Rússlands eða 2. sætið og þar með sæti í umspili um sæti á HM.
Ísland á eftir að mæta Tyrklandi á útivelli 6. október og Kósovó á Laugardalsvelli þremur dögum síðar.
Anton Brink, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á Laugardalsvellinum í kvöld og tók myndirnar hér að neðan.
Tengdar fréttir

Sverrir Ingi: Þetta er ekki eins og að spila með félagsliði
Sverrir Ingi Ingason spilaði sinn fyrsta alvöru leik í byrjunarliði Íslands í kvöld og stóð sig afar vel.

Ragnar: Mikill léttir eftir klúðrið síðast
Ragnar Sigurðsson, miðvörður íslenska landsliðsins í knattspyrnu, segir að framundan séu tveir úrslitaleikir eftir 2-0 sigur á Úkraínu í undankeppni HM á Laugardalsvelli í kvöld.

Einkunnir Íslands: Gylfi fremstur meðal jafningja
Stórkostlegu kvöldi í Laugardalnum lauk með 2-0 sigri Íslands á Úkraínu í undankeppni HM 2018.

Tyrkir unnu Króata | Ísland og Króatía jöfn á toppnum
Tyrkir unnu 1-0 sigur á Króatíu í I-riðli undankeppni Heimsmeistaramótsins í knattspyrnu í kvöld. Tyrkir eru því komnir með 14 stig, eins og Úkraína, en fara upp fyrir þá í þriðja sætið á markatölu.

Emil í banni gegn Tyrkjum
Emil Hallfreðsson verður í leikbanni þegar Ísland sækir Tyrkland heim í undankeppni HM 6. október næstkomandi.

Emil: Búinn á því svo ég hlýt að hafa gert eitthvað rétt
Emil Hallfreðsson, miðjumaður íslenska landsliðsins í knattspyrnu, var himinlifandi með 2-0 sigur á Úkraínu í undankeppni HM, en leikið var á Laugardalsvelli. Emil átti glæsilegan leik.

Umfjöllun: Ísland - Úkraína 2-0 | Stórkostlegur seinni hálfleikur
Ísland kom sér í lykilstöðu í I-riðli undankeppni HM 2018 með 2-0 sigri á Úkraínu í kvöld. Gylfi Þór Sigurðsson skoraði bæði mörk Íslands í síðari hálfleik, sem var einn sá besti sem Ísland hefur sýnt síðustu árin og er af mörgu að taka.

Twitter: VIP-liðið missti af markinu
Ísland karlalandsliðið í knattspyrnu leiðir 1-0 gegn Úkraínu í undankeppni HM í knattspyrnu. Gylfi Þór Sigurðsson skoraði markið eftir fyrirgjöf Emils Hallfreðssonar.

Gylfi búinn að jafna við Ríkharð
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði bæði mörk Íslands í 2-0 sigri á Úkraínu í undankeppni HM í kvöld.

Sjáðu mörkin hans Gylfa í sigri Íslands á Úkraínu
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði bæði mörk Íslands í 2-0 sigri á Úkraínu á Laugardalsvelli í kvöld

Aron Einar: Setjum okkur markmið og hættum ekki fyrr en við náum þeim
Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, var stoltur af strákunum í leikslok. Ísland vann frábæran 2-0 sigur á Úkraínu í undankeppni HM.

Jói Berg: Lið eru orðin hrædd við að mæta á Laugardalsvöll
"Það var ekkert planið að taka því rólega í fyrri og keyra svo á þá. Þannig spilaðist bara leikurinn,“ segir Jóhann Berg Guðmundsson yfirvegaður eftir leik.

Gylfi: Skora þrennu gegn Tyrkjum
Gylfi Þór Sigurðsson var maður leiksins í 2-0 sigri Íslands á Úkraínu í kvöld.