Martin: Erum eins og gatasigti í vörninni Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 5. september 2017 13:39 „
Þetta var rosalega erfiður leikur, það er kannski ástæða fyrir því að þeir eru taplausir hingað til,“ sagði Martin Hermannsson í viðtali við Arnar Björnsson eftir tap Íslands gegn Slóveníu á Eurobasket í Finnlandi í dag. „Eru með fáránlega góða leikmenn og hitta öllu ofan á það, þannig að þetta var rosalega erfitt.“ Íslensku leikmennirnir komu mjög sterkir til leiks í dag og voru yfir að loknum fyrri hálfleik, 25-23. „Enn og aftur sínum við að við getum þetta, við erum góðir í körfubolta. Þegar við spilum saman og það er stemming í okkur þá erum við góðir. Svo aftur er eitthvað að gerast, þegar þeir setja smá áhlaup á okkur þá erum við að brotna, og það bara gengur ekki á svona stóru móti að brotna svona auðveldlega,“ sagði Martin. „Þótt að þeir séu komnir 10 stigum yfir þá verðum við að halda áfram og minnka munin aftur. En þeir eru góðir í að halda forystu og góðir í körfubolta og góðir í að finna okkar veikleika. Þeir gerðu bara hrikalega vel.“ Slóvenska liðið skoraði 37 stig í öðrum leikhluta, og var staðan í hálfleik 43-60. „Það er allt of mikið. Alveg sama þótt við værum að spila á móti bandaríska landsliðinu, það er bara allt of mikið. Við þurfum einhvern veginn að hætta að vera eins og gatasigti í vörninni,“ sagði Martin Hermannson. Martin var besti maður íslenska liðsins í dag, skoraði 18 stig, tók 5 fráköst, gaf 4 stoðsendingar og stal 5 boltum.
EM 2017 í Finnlandi Tengdar fréttir Umfjöllun: Ísland - Slóvenía 75-102 | Við ofurefli að etja í Helsinki en bestu úrslitin til þessa Frábær fyrsti leikhluti íslenska liðsins var ekki nóg gegn öflugu liði Slóveníu í dag. 5. september 2017 12:15 Mest lesið Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Enski boltinn Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Fótbolti Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Enski boltinn Spilar áfram með Messi í Miami Fótbolti Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Handbolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Ungstirnið skallaði meistarana áfram Enski boltinn „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ Körfubolti Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Körfubolti Vålerenga úr leik eftir tap fyrir stöllum Glódísar Fótbolti Fleiri fréttir „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ KR á toppinn Uppgjörið: Grindavík - Haukar 92-93 | Fullkomin jólagjöf Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Rýndu í gamlar myndir: „Svakalega ertu kringlóttur í framan“ Guðbjörg fyrsta konan í fjögur hundruð leikina Stjarnan og Grindavík mætast í bikarnum Tryggvi og Sara best á árinu New York Knicks vann titil í nótt Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Martin áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli Segir að Keflvíkingar hafi ekki þolað gott umtal Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Stjarnan jók á raunir Álftaness og Valsmenn slógu ÍR-inga út „Auðvitað var þetta sjokk“ Skór sem Jordan notaði seldust á tæplega níutíu milljónir Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Tindastóll, Keflavík og KR brunuðu áfram í bikarnum Hilmar með frábærar mínútur og risaþrist í dramatískum sigri Aftur og nýbúnir en núna í bikarnum KR, Aþena og Tindastóll örugglega áfram í bikarnum Íslandsmeistararnir unnu bikarmeistarana í framlengingu Elvar leiddi liðið til sigurs Tryggvi lét mest til sín taka Wembanyama sneri aftur í sigri gegn meisturunum Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Sara Rún með sigurkörfuna í ótrúlegri endurkomu Keflavíkur Sjá meira
Umfjöllun: Ísland - Slóvenía 75-102 | Við ofurefli að etja í Helsinki en bestu úrslitin til þessa Frábær fyrsti leikhluti íslenska liðsins var ekki nóg gegn öflugu liði Slóveníu í dag. 5. september 2017 12:15