Tvær af bestu knattspyrnuþjóðum heims mæta á Wembley í nóvember Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. október 2017 13:45 Neymar verður væntanlega á Wembley í nóvember. Vísir/Getty
Englendingar tryggðu sig inn á HM í Rússlandi í gær og enska knattspyrnusambandið er strax komið á fulla ferð að undirbúa enska landsliðið fyrir heimsmeistaramótið. Fyrsta skrefið er að bjóða tveimur stórþjóðum á Wembley í næsta mánuði. Sky Sports segir frá. Brasilía og Þýskaland hafa eins og England tryggt sér sæti á HM í Rússlandi og þau mun mæta til London með nokkurra daga millibili í nóvember. Enska landsliðið tekur á móti heimsmeisurum Þýskalands á Wembley leikvanginum föstudaginn 10. nóvember en fimmfaldir heimsmeistara Brasilíu spila sína við enska landsliðið á Wembley fjórum dögum síðar. Englendingar tryggðu sér sæti á HM með 1-0 sigri á Slóveníu í gær en Harry Kane skoraði sigurmarkið í uppbótartíma leiksins. Lokaleikur enska landsliðsins í undankeppninni er út í Litháen á sunnudaginn. Þetta verður annar vináttulandsleikur Englands og Þýskalands á þessu ári en Þjóðverjar unnu 1-0 sigur í Dortmund í mars þar sem Lukas Podolski skoraði eina mark leiksins. Síðasti leikur þýska landsliðsins á Wembley leikvanginum var aftur á móti fyrir fjórum árum þegar Arsenal-maðurinn Per Mertesacker skoraði eina mark leiksins. Brasilíumenn mættu síðast á Wembley í febrúar 2013 en þá tryggði Frank Lampard enska landsliðinu 2-1 sigur með marki í seinni hálfleik.
Enski boltinn HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Ballið búið hjá Chiefs og Mahomes meiddist á hné Sport „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Körfubolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Emelía valin efnilegust hjá danska toppliðinu: „Einstök gleðisprengja“ Fótbolti Brasilíumenn byrja vel undir stjórn Menezes - myndband Fótbolti Mætti til leiks berfættur og ber að ofan í snjókomunni Sport Brjálaðist og sendi dómarann á sjúkrahús Fótbolti Pogba dreymir um að eiga dýrasta úlfalda heims Sport Upphitun japanska fótboltamannsins er algjört augnakonfekt Fótbolti Katrine Lunde fékk draumaendinn sinn og þær norsku urðu heimsmeistarar Handbolti Fleiri fréttir Henderson heiðraði minningu Jota eftir fyrsta markið sitt í fjögur ár Calvert-Lewin jafnaði fyrir Leeds í lokin „Gott fyrir svæðið, félagið og stuðningsmennina“ Sunderland vann nágrannaslaginn fyrir norðan Haaland með tvennu í öruggum útisigri City Sangaré og Hudson-Odoi hrelltu Tottenham Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag „Stundum þarf maður heppni“ Tvö sjálfsmörk færðu Arsenal fimm stiga forkost á toppnum „Verstu 48 klukkustundirnar“ síðan að hann kom til Chelsea Fulham vann í markaleik á Turf Moor Ian Rush lagður inn á sjúkrahús „Kannski áttum við heppnina skilið í dag“ „Ég held að þetta hafi ekki verið kveðjustund“ „Þegar þú spilar fyrir Liverpool verðurðu bara að vinna leiki“ Salah lagði upp í endurkomunni en Ekitike sá um mörkin Palmer skoraði í fyrsta sinn síðan í september Mesta heillaskref ferilsins að hafa verið rekinn Varalesturinn flæktist fyrir þýska tvíeykinu „Held að ég gæti ekki hætt í fótbolta“ Salah snýr aftur eftir sáttafundinn Isak tæpur og Gakpo frá Rooney var hótað lífláti eftir að hann fór til Man Utd Slot fundar með Salah í dag: „Mun ákvarða hver næstu skref verða“ „Liverpool hefði ekkert unnið ef það væri ekki fyrir Mo Salah“ Kærasta Haaland hefur fengið nóg Girti niður um liðsfélagann í markafagni Skuldir Man United nú meira en 127 milljarðar Tóku hetjuna með sér í Evrópuleikinn Sjá meira