Fyndin uppákoma á landsliðsæfingu: Vissu ekki að tyrkneski þjálfarinn væri í banni
Tómas Þór Þórðarson spurði þá landsliðsþjálfarann Heimi Hallgrímssson að því hvort fjarvera Mircea Lucescu í leik Íslands og Tyrklands í Eskisehir í undankeppni HM á föstudaginn myndi skipta máli.
Lucescu var úrskurðaður í eins leiks bann af aganefnd FIFA í gær fyrir atvik sem kom upp eftir tap Tyrkja á móti Úkraínu á útivelli í síðustu landsleikjaviku.
Heimir kom af fjöllum og hélt fyrst að verið væri að tala um Emil Hallfreðsson sem tekur út leikbann á föstudaginn.
Heimir kallaði þá á Frey Alexandersson sem sá um að skoða tyrkneska liðið.
Tómas endurtók spurninguna en líkt og Heimir hafði Freyr ekki hugmynd um að Lucescu væri kominn í bann.
Þessa skemmtilegu uppákomu má sjá í spilaranum hér að ofan.
Tengdar fréttir

Strákarnir fögnuðu gríðarlega í leikslok þegar Marciniak dæmdi síðast hjá Íslandi
Szymon Marciniak, 36 ára Pólverji, mun dæma leikinn mikilvæga á föstudagskvöldið þegar Ísland mætir Tyrklandi í undankeppni HM 2018.

Hitinn of mikill fyrir hádegisæfingu hjá strákunum okkar
Íslenska landsliðið í fótbolta þurfti að fresta æfingu um sex klukkutíma vegna hitans í Antalya.

Gista í túristaparadís og æfa í hótelgarðinum | Myndir
Íslenska fótboltalandsliðið hefur það ansi gott í Antalya þar sem það verður fram á annað kvöld.

Hannes Þór tæpur fyrir leikinn á móti Tyrklandi?
Landsliðsmarkvörðurinn þurfti að yfirgefa æfingu Íslanda í Antalya snemma í dag.

Tyrkir verða þjálfaralausir á móti Íslandi
Mircea Lucescu stýrir Tyrklandi ekki af hliðarlínunni á móti Íslandi þar sem hann var úrskurðaður í leikbann í gær.

Bakslag hjá Aroni Einari
Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska fótboltalandsliðsins, er ekki alltof bjartsýnn á að hann geti verið með liðinu í leiknum mikilvæga á móti Tyrkjum í undankeppni HM 2018.

Jóhann Berg: Lét Gylfa vera í þetta skiptið
Gylfi Þór Sigurðsson fékk ekki að heyra það frá Jóhanni Berg eftir tap Everton á móti Burnley um helgina.

Aron Einar: Ég mun ekki taka neina áhættu
Landsliðsfyrirliðinn ætlar ekki að leggja líkamann að veði á móti Tyrklandi. Hann spilar ef hann er klár í slaginn.