Körfubolti

Haukur Helgi með fullkomna þriggja stiga nýtingu í mikilvægum sigri Cholet

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Haukur Helgi hitti úr öllum þriggja stiga skotunum sem hann tók.
Haukur Helgi hitti úr öllum þriggja stiga skotunum sem hann tók. vísir/ernir
Haukur Helgi Pálsson og félagar í Cholet unnu afar mikilvægan sigur á JL Bourg, 76-77, í frönsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Þetta var aðeins annar sigur Cholet á tímabilinu en liðið er í 16. sæti deildarinnar.

Haukur Helgi skoraði 11 stig og tók fjögur fráköst á þeim rúmu 30 mínútum sem hann spilaði í kvöld. Landsliðsmaðurinn hitti úr öllum þremur þriggja stiga skotunum sem hann tók í leiknum.

Martin Hermannsson var næststigahæstur í liði Chalons-Reims sem laut í lægra haldi fyrir Lyon-Villeurbanne, 93-80, á útivelli. Þetta var fyrsta tap liðsins í fjórum leikjum.

Martin skoraði 14 stig fyrir Chalons-Reims í leiknum í kvöld. Hann hitti úr fimm af átta skotum sínum inni í teig og annað af tveimur þriggja stiga skotum hans rataði rétta leið.

Chalons-Reims er í 8. sæti deildarinnar með fjóra sigra og þrjú töp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×