Ekki nóg með það að staðurinn sé 20 ára heldur er útidyrahurðin að staðnum 90 ára. Það er því sannarlega tilefni til að fagna í dag.
Þegar staðurinn var opnaður árið 1997 var ekki vanalegt að bjóða upp á matseðil eins og þá var í boði, og hefur verið í boði nánast óbreyttur síðan þá.
„Grái kötturinn var stofnaður af hjónunum Jóni Óskari og Huldu Hákon. Þau höfðu verið í listnámi í Brooklyn, New York en þegar þau komu heim fannst þeim vanta þennan ameríska morgunmat sem þau voru svo hrifin af í Bandaríkjunum. Þau fengu húsnæði og opnuðu þá þennan stað, meðal annars til að svala eigin þörf fyrir bandarískan morgunmat,“ segir Ásmundur Helgason hlæjandi um það hvernig þetta byrjaði allt saman og hvaðan hugmyndin um að afgreiða amerískar pönnukökur hafi komið, en hann ásamt Elínu Ragnarsdóttur, konu sinni, er núverandi eigandi Gráa kattarins.
„Friðrik Weisshappel hjálpaði þeim við að hanna staðinn að innan og það er mikið af listaverkum eftir þau á veggjunum. Staðurinn hefur svo bara gengið vel í þessi 20 ár og matseðilinn haldist nánast óbreyttur. Svo í sumar fannst þeim Jóni Óskari og Huldu vera komið nóg hjá þeim og við hjónin fréttum af því, þau eru vinafólk okkar, þannig að þetta endaði með að við keyptum staðinn í júlí. Það gengur bara afskaplega vel.“

Valdimar Tómasson ljóðskáld var líka fyrsti gestur staðarins, og sá eini fyrsta daginn. Hann sat í þann klukkutíma sem staðurinn var opinn þann daginn og drakk malt.
„Við ætlum að halda upp á afmælið í dag. Það verður stafli af „pönnsum“ með sírópi og smjöri auðvitað á fimmhundruð kall. Þannig að þú getur fengið pönnukökur og kaffi fyrir þúsund kall. Það verður líka allur matseðillinn í boði og við ætlum að hafa opið á meðan fólk mætir,“ segir Ásmundur en Grái kötturinn er opnaður klukkan 7.30.