Fengu sér allar fjórar sama húðflúrið Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar 25. nóvember 2017 11:00 Nína í stólnum, Anna Katrín, Glódís Tara og Halla standa hjá. Visir/Stefán
Ljósaganga UN Women fer fram í dag, á alþjóðlegum baráttudegi Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi. Dagurinn markar upphaf 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi sem UN Women á Íslandi ásamt öðrum félagasamtökum hér á landi eru í forsvari fyrir. Yfirskrift Ljósagöngunnar í ár er: Höfum hátt. Þær Anna Katrín Snorradóttir, Glódís Tara, Halla Ólöf Jónsdóttir og Nína Rún Bergsdóttir leiða gönguna og flytja hugvekju. Þær eiga það sameiginlegt að Robert Downey braut á þeim í æsku. Þær hittust í fyrsta skipti í vikunni allar saman en það hafa þær ekki gert hingað til því Nína Rún býr í Bandaríkjunum.I am the storm, þetta flúr bera þær nú allar fjórar. Fréttablaðið/Stefán Blaðamaður hitti þær á Bleksmiðjunni, húðflúrstofu þangað sem þær voru komnar til að fá sér allar sama húðflúrið: Setninguna „I am the storm.“ Setningin lýsir baráttukrafti þeirra. „Við hittumst bara áðan, fyrir um tveimur tímum,“ segir Nína Rún og segir það hafa verið góða og tilfinningaþrungna stund. „Það er góð tilfinning, við erum allar tengdar órjúfanlegum böndum,“ segir Anna Katrín.Allar saman í fyrsta sinn. Þær fjórar leiða gönguna í ár. Fréttablaðið/StefánÞær fjórar vilja leggja áherslu á mikilvægi þess að berjast gegn óréttlæti og mun Nína flytja hugvekju fyrir þeirra hönd. Gangan hefst klukkan 17.00 á Arnarhóli við styttu Ingólfs Arnarsonar og verður gengið upp Amtmannsstíg að Bríetartorgi. Harpa verður lýst upp í appelsínugulum lit, sem er táknrænn litur fyrir von og bjarta framtíð kvenna og stúlkna án ofbeldis.
Húðflúr Mest lesið Svona verður röð laganna á laugardaginn Lífið Einhleypir þokkasveinar Lífið Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Lífið Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Lífið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Lífið Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Vinsælir í Basel en hversu hátt ná þeir? Lífið Bieber segist ekki á meðal þeirra sem Diddy braut á Lífið Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Lífið Fleiri fréttir Baráttan um jólagestina hafin Börn í Laugardal fögnuðu fjölbreytileikanum í árlegri gleðigöngu Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Þórhildur greinir frá kyninu Bieber segist ekki á meðal þeirra sem Diddy braut á Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Vinsælir í Basel en hversu hátt ná þeir? Herra Hnetusmjör í aðalhlutverki hjá Laufeyju Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Einhleypir þokkasveinar Svona verður röð laganna á laugardaginn Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Þessi tíu lög komust í úrslit VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Sjá meira