Martin keppir á stjörnuhelgi franska körfuboltans Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. desember 2017 16:30 Martin Hermansson. Vísir/Anton
Martin Hermansson er leikinn með körfuboltann eins og við þekkjum vel frá leikjum hans með íslenska körfuboltalandsliðinu á síðustu árum og það hefur heldur ekki farið framhjá Frökkunum í vetur. Martin er á sínu öðru ári í franska körfuboltanum en þetta er þó hans fyrsta í úrvalsdeildinni þar sem hann spilar nú með liði Champagne Chalons-Reims. Leikni Martins með boltann hefur vakið það mikla athygli í franska körfuboltanum á þessari leiktíð að honum var boðið að keppa á stjörnuhelgi franska körfuboltans. Martin keppir þá við þrjá aðrar í „Skills challenge“ sem er þrautabraut með allskyns krefjandi stöðvum eins og við höfum séð á stjörnuhelgi NBA-körfuboltans.Voici les 4 joueurs sélectionnés au @SFR_Sport#SkillsChallenge du #ASG2017@Benji6Sene du @BCMBasket (double tenant du titre)@julienaxel5 de la @jdadijonbasket@hermannsson15 du @CCRBASKET@JBlass_10 des @SharksAntibespic.twitter.com/QPFePU8OUU — LNB (@LNBofficiel) December 4, 2017 Þetta er mikill heiður fyrir Martin en stjörnuleikurinn sjálfur er leikur milli úrvalsliðs frönsku leikmannanna á móti úrvalsliði erlendra leikmanna. Stjörnuleikurinn fer fram í París 29. desember næstkomandi og Martin nær vonandi að safna kröftum heima á Íslandi um jólin áður en hann mætir á stjörnuhelgina. Martin er með 12,1 stig og 3,9 stoðsendingar að meðaltali í leik með Champagne Chalons-Reims það sem af er tímabilinu en hann var með 17,2 stig og 5,7 stoðsendingar að meðaltali í b-deildinni á síðustu leiktíð.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira