Mikið af okkar skærustu stjörnum hafa verið svo lánsamar að eignast börn á árinu og ákvað Lífið að fara yfir þá sem hafa notið barnaláns árið 2017, þar sem það er farið að styttast í annan endann.

Sex börn, takk fyrir
Leikarinn Rúnar Freyr Gíslason eignaðist soninn Breka Frey með konu sinni, Guðrúnu Jónu Stefánsdóttur aðfaranótt 17. nóvember.Litli snáðinn var þrettán merkur og 49 sentímetrar þegar hann kom í heiminn, töluvert fyrir tímann, en settur dagur var 9. desember.
Þetta er langt frá því að vera fyrsta barn skötuhjúanna. Þegar þau byrjuðu saman átti Rúnar Freyr þrjú börn og Guðrún Jóna eitt. Þau eignuðust síðan dóttur saman árið 2015, þannig að nú telur barnahópurinn sex stykki. Þvílík lukka.
Flýtti sér í heiminn
Hraðfréttapésinn Fannar Sveinsson og hjúkrunarfræðingurinn Valgerður Kristjánsdóttir eignuðust son þann 28. nóvember.Líkt og hjá Rúnari Frey og Guðrúnu Jónu, kom sá stuttu einnig fyrir tímann, eða alls tveimur vikum.
Hér má sjá snáðann litla:
Og hér eru þau Fannar og Valgerður:
Frumburðurinn fæddur
Tónlistarfólkið Logi Pedro Stefánsson og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir eignuðust sitt fyrsta barn þann 1. október og hlotnaðist þeim sonur.Líklegt þykir að drengurinn fái tónlistargen í vöggugjöf þar sem báðir foreldrar hans hafa gert það gott á því sviði, Logi með Retro Stefson og Þórdís með Reykjavíkurdætrum.
Logi og Þórdís eru ekki lengur par en ala soninn upp saman.

Barn í stað frumsýningar
Fjölmiðlamaðurinn og skáldið Mikael Torfason eignaðist dóttur þann 20. október með eiginkonu sinni, leikkonunni Elmu Stefaníu Ágústsdóttur.Dóttirin kom í heiminn sama kvöld og verkið Guð blessi Ísland var frumsýnt í Borgarleikhúsinu, en Mikael er höfundur verksins ásamt Þorleifi Arnarssyni. Hann missti því af frumsýningunni en fékk dóttur í staðinn. Aldeilis dásamleg skipti, eins og Mikael sagði sjálfur frá á Facebook-síðu sinni.
„Þetta er hún Ída. Komin í fangið á stóru systkinum sínum, þeim Ísold og Jóel. Hún lét bíða eftir sér og stal senunni á frumsýningunni sem ég missti af; með ánægju. Við erum loksins komin heim í Brekkuselið. Ídu heilsast vel, sem og móður hennar. Þær eru stálhraustar og við gætum ekki verið hamingjusamari,“ skrifaði hann á sínum tíma.

Krakkastóð hjá kynfræðingi
Kynfræðingurinn Sigga Dögg eignaðist son í lok janúar 2017 með manni sínum, Hermanni Sigurðssyni.Fyrir áttu þau tvö börn, Írisi Lóu og Henry Nóa, en nýjasti snáðinn, sem bráðum verður eins árs, heitir Benjamín Leó.
Tvö börn hjá matgæðingi
Matgæðingurinn Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir eignaðist sitt annað barn með eiginmanni sínum, Haraldi Haraldssyni, föstudagskvöldið 8. september.Eva og Haraldur buðu aðra dóttur sína velkomna í heiminn, en fyrir áttu þau dótturina Ingibjörgu Rósu sem fagnaði þriggja ára afmæli sínu í sumar.
Nýjasta viðbótin við fjölskylduna fékk nýverið nafnið Kristín Rannveig.
Á eftir snappi kemur barn
Snapchat-stjarnan Guðrún Veiga Gunnarsdóttir og Guðmundur Þór Valsson, eiginmaður hennar, eignuðust dóttur þann 9. maí.Guðrún Veiga leyfði aðdáendum sínum á samfélagsmiðlum að fylgjast vel með meðgöngunni og var því mikil gleði meðal fylgjenda hennar þegar hún birti loks mynd af nýfæddu barninu.
Fyrir eiga þau Guðrún Veiga og Guðmundur son.
Skot og mark
Knattspyrnumaðurinn Alfreð Finnbogason og fimleikastjarnan Fríða Rún Einarsdóttir eignuðust sitt fyrsta barn á fyrrihluta þessa árs.Þegar Alfreð tilkynnti um fæðingu barnsins á Facebook-síðu sinni sagði hann að þau skötuhjúin gætu ekki verið ánægðari með komu stúlkunnar í heiminn og að þau hlakki til að takast á við þennan nýja kafla í lífi þeirra beggja.
Listrænt handboltabarn
Handboltahetjan Aron Pálmarsson og söng- og leikkonan Ágústa Eva Erlendsdóttir buðu litla dóttur velkomna í heiminn þann 7. nóvember.Stúlkan er frumburður Arons en fyrir á Ágústa Eva son úr fyrra sambandi sem kom í heiminn árið 2011.
Hér fyrir neðan má sjá mynd af Aroni og Ágústu sem var tekin rétt áður en hnátan kom í heiminn: