Glamour

Seiðandi smokeyförðun

Kynning skrifar
Glamour í samstarfi við Bobbi Borwn sýnir hér glæsilega förðun þar sem aðaláherslan er lögð á augnförðunina. Gráir og brúnir tónar leika lykilhlutverk. 

Fyrst er augnblýantur borinn á við augnháralínu og honum blandað út, því næst er sanseraður augnskuggi borinn á augnlok og undir augnbein.

Ljós augnskuggi er svo notaður í innri augnkrók og undir augabrún. Tvö lög af maskara eru borin á augnhárin fyrir þéttari og dramatískari augnhár.

Farði í stiftformi er borinn á í þunnu lagi til að jafna út húðtón og sólarpúður borið á enni og kinnbein til að ná fram gylltu og fersku yfirbragði.

Fölbleikur, rakagefandi varalitur setur svo punktinn yfir i-ið.

Hér má sjá Glamour með Hörpu Kára í fararbroddi leika förðunina eftir í myndbandi sem fylgjendur okkar á Instagram fengu beint í æði í vikunni. Einfalt og þægilegt - njótið!

Myndbandið var tekið upp á Samsung Galaxy S8+. 



×