Innlent

Ferðamenn að bíða eftir rútu leita skjóls á hárgreiðslustofu

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Ferðamenn bíða eftir rútu í Tryggvagötu.
Ferðamenn bíða eftir rútu í Tryggvagötu. vísir/eyþór
„Mér finnst eins og ég sé á Manhattan, það er alltaf svo mikið af fólki hérna fyrir utan hjá mér,“ segir Svavar Örn á hárgreiðslustofunni Senter í Tryggvagötu.

Safnstæði fyrir rútur erlendra ferðamanna eru á nokkrum stöðum í miðbænum, meðal annars á Tryggvagötu við Senter og Hótel 1919. Svavar segir að oft sé örtröð af norpandi fólki framan við stofu hans snemma á morgnana sem fái litla sem enga þjónustu.

Svavar Örn hárgreiðslumeistari í Senter.vísir/anton brink
„Það er bara staur en ekkert biðskýli eða neitt fyrir þetta fólk. Það er bara sett út á götu og svo er ekki ein ruslatunna,“ segir Svavar. Umleitan til borgarinnar hafi engan árangur borið. 

„Hótelstjórinn á 1919 og við erum að tína upp sígarettustubba og alls kyns drasl eftir fólkið,“ segir hárgreiðslumeistarinn ósáttur. 

Að sögn Svavars hefur hann ekki verið boðaður á einn fund vegna málsins. 

„Ég fagna því að hafa alla þessa túrista sem lita mannlífið en finnst afar sérstakt hvað við hugsum illa um þá,“ segir hann. Þegar veður séu vond og teygist úr bið ferðmannanna leiti þeir inn á hárgreiðslustofuna þar sem sé sjálfvirk hurð. Sumir vilji komast á snyrtingu. 

„Það á til að kólna mikið hjá mér á morgnana og leiðinlegt að þurfa endalaust að biðja fólk um að vera úti – eða þá inni svo við króknum ekki.“

Svavar segir að stæði við Tryggvagötuna hafi í skjóli nætur verið tekin undir rútur ferðamannanna. 

„Það eru eiginlega engin stæði eftir fyrir hinn almenna Íslending sem ætlar að sækja þjónustu hér í miðborginni. Ég er alveg hissa á að Öryrkjabandalagið eða Félag eldri borgara hafi ekki gert meira veður út af þessu því það er nánast útilokað að vera fótfúinn að sækja þjónustu í miðbæinn. Þetta er ekki boðlegt.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×